Áns rímur bogsveigis eru rímur sem taldar eru hafa verið ortar á 16. öld. Sögusviðið er fengið úr efni Fornaldarsögu sem nefnist Áns saga bogsveigis sem er ein af Hrafnistumannasögunum.
Varðveisla
Aldur
Höfundur
Ókunnur
Efni Áns rímna bogsveigis
Úr efni fornaldarsögunnar Áns sögu bogsveigis
Mansöngvarnir
Mansöngvarnir eru fullmótaðir og má finna í öllum rímnabálkunum átta. Þeir eru á bilinu 4 til 9 erindi. Í mansöng 1. rímu talar skáldið um að það hafi ort að beiðni kvenna og að hann hafi ekki ekki nennt því (I, 1). Skáldið tekur líka fram að því finnst erfitt að yrkja til kvenna sökum aldurs. Hann kvartar yfir aldri sínum (I, 3). Í mansöng II. rímu tekur skáldið fram að fólk, einkum konur muni hlýða á kveðskapinn (II, 2). Þó segir hann í þessum mansöng að hann kærir sig lítið um það að yrkja til kvenna heldur skjala „heldur um skatna þá/ sem skáldin vilja ei blása uppá." Í III. mansöng lítur út fyrir að skáldið muni ekki yrkja til þeirra þar sem þær eru sífellt að hugsa um aðra menn heldur en hann. Það sést greinilega að skáldið er heldur biturt í garð kvenna. Í IV. mansöng heldur skáldið áfram og segir í rauninni það vera gamlan sið rímnaskálda að yrkja í garð kvenna á sama tíma og þeir þjást, sbr. að „ganga út um sorgar hlið/ kallsa ekki um kvenna lið svo kurteis skálldin styggist við." (IV, 1). Í næstsíðasta erindi mansöngs IV. rímu kemur skáldið með varnaðarorð til annarra skálda svo þeir höggvi ekki í sama knérunn og hann, þ.e. að þeir skuli ekki leggja lystugt orð til kvenna þegar þær biðja um það. Í mansöng V. rímu er búið að úthýsa gamla manninum, hann er nauðbeygður til þess að koma sér í annað hús sem fullt var af angri og alls kyns böli (V, 5). Í mansöng VII. rímur kveðst skáldið ekki hirða um að iðka Eddu íþróttir heldur vill hann að áheyrendur njóti góðs af og skilji skáldskap sinn. Í síðasta mansöng telur skáldið að þeir menn séu heppnir sem aldrei hafa kynnst ástinni. Betra væri að deyja ástarlaus heldur en sá sem heltekinn er af fyrri ást.
Annað
Útgáfur
Umfjöllun
Aðalheiður Guðmundsdóttir. (2001, bls. xv)
Heimildir
Aðalheiður Guðmundsdóttir (2001). Úlfhams saga. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.
Áns rímur bogsveigis
I. ríma - (lengd mansöngs: 5 erindi)
II. ríma - (lengd mansöngs: 4 erindi)
III. ríma - (lengd mansöngs: 4 erindi)
IV. ríma - (lengd mansöngs: 4 erindi)
V. ríma - (lengd mansöngs: 9 erindi)
VI. ríma - (lengd mansöngs: 9 erindi)
VII. ríma - (lengd mansöngs: 6 erindi)
VIII. ríma - (lengd mansöngs: 5 erindi)