1. ríma
1. MjN uar ravnar raddar eik.
reyfd aa einum morne.
þui mvn Skrimnnis skala kueik.
skeinkt af odar hornne.
2. Fyrer þad listugt lifit iungt.
lek eg mier uid yndi.
þui ber eg þungan þagnar pungt
og þrautar davfligt lyndi.
3. Hugxa eg jafnan um fyrer mier.
hnugen gledi og seime.
huad natturan olik er. [BBB]
er adur uaR fyr j heime.
4. Hvortt mun nær at hamingian er.
harlla galen vm stunder.
eda mun þeyu þickia hier.
þegna hlyrne vnder.
5. Þiofa born og þræla kind
þad giorer sier kæra. [XXX]
hinum sem odrum varpe j uind.
er uar fyrer heidur og æra.
6. Gongu menn og gormar þeir
girntuzt fyr er med trinum.
hreykiazt upp j hosse meir.
en heidri kunni sinum.
gormar = ath. gromar (?)
7. Hroplig ord og hesta Ran.
hierada millvm fliuga.
leika fyst med lygar og sman.
og litel magnnan kuga.
8. Enn þegar reckar raka j braut.
reisu einni fleire.
koma þa heim med klæða skraut.
og kallaz huerivm meiri.
9. Talraud klædi og trefla strvt.
taca þeir upp at skarta.
reisugum hestum rida ut
med rond og hialma biarta.
10. So er nu ordit uæntt um þa.
sem uirda adra froma
langan ueg ma sueiten sia.
seggia fegurd og bloma.
11. Huer kann segia hinum er spyr.
hafa þeir aud og sæmder.
uissi eingi at uæri fyr.
uirdar illa ræmder.
12. Hier med gefur þeim hamingian mekt.
heidur og alls kyns nægder.
kaupa uif af uænne sleckt.
og uelia dyrar mægder.
13. Ytrar blandazt ætter þa.
og eru það heimsens vælar.
hræaz saman sem heyra ma.
herra slekt og þrælar.
14. Fyre girntuzt fagurlig uif
framandi men at gilia.
þeir settu j haska sal og lif.
fyrer sætu miukan uilia.
15. Herra art og frygdar frvr
fyr j hveriv landi.
lofudu sidan leyndar tru.
med list og elsku bande.
16. Dreinger feingv j dara uind.
dise raddar jdia.
þordi eingi þræla kind.
þeirra fa ne bidia.
17. Yfret hefe eg efni j nog.
at ykia martt af sliku.
setivm fyrst aa fræda skog.
frosta biorn at liku.
18. Haloga lande hilme þann.
holdar sogdu styra.
grettus jordu gladdi hann.
gumna sinna dyra.
19. Logi het þesse lofdung gladur.
listum hladen og prydi.
fundizt hefur ei fromre madur.
fyr med heidnum lydi.
20. Margan hefur hann geira galldur.
giortt aa londum uida.
nv er hann hnigen aa efra alldur.
og atti drottning blida.
21. Ragnna het sa ristell merkur.
Reyfdur navdrv sande.
hennar fader var stiller sterkur.
og styrdi Biarma landi.
22. Dogling ol sine drottnning uidur.
dyrlig botn j nadum.
Helgi nefndizt hilmirs nidur.
Handins skipte uodum.
23. Syster hans uar frygdugt fliod.
fyrdar Suanhuit kalla.
bædi uar su biort og riod.
briken ofnes ualla.
24. Likams allar lister þær.
lifit matti pryda.
budlungs dotter biortt og skær.
bar med hyggiu þyda.
25. Fanzt ei uænni uella lind.
uist um nalæg rike.
matti eingi mannlig kind
metaz j fegra like.
26. So uar hun blid uid budlungs þiod.
bragna huernn sinn kuaddi.
ristil bytti rinar glod.
og recka sina gladdi.
27. Opt uar kæran koppum nad.
ef kom þeim baulit til hannd[a]
æ sa brvdurinn besta rad.
at bæta hvers kynzt uanda.
28. Hennar lof med lista nægd.
leikur um heimen vida.
þesse giordi frvinar frægd.
fyrdum kost at strida.
29. Þegar at Helgi þrena fimm.
þreytt hefur uetur j landi.
hans uar lunden longum grim
at leika stortt med brandi.
30. Sidan talar uid fodur fliott.
fleyger yggiar tiallda.
skioldung fa mer skeidur og drott.
skal j burtu halda.
31. Fader minn attu fatekt land.
fylkis kongs ertt liki.
eg skal uinna hardre hand.
halfu meira rike.
32. Þin skal dotter þetta havdur.
þier at lidnum styra.
eg skal fa edur falla daudur.
fron og drottning dyra.
33. Dirfizt madur af minni art.
mina systur at gilia.
þeim skal eg lata laufan hartt.
lif fra buki skilia.
34. Nema eg sialfur hit uæna uif.
uilie eg manne gipta.
ætti eg mitt at leysa lif.
eda londum uid hann at skipta.
35. Helga suaradi budlung blidur.
brigdum avr af feingi.
kios þier sialfur frænden fridur.
fiolda af skipum og meingi.
36. Ek uil lofa þier lang skip .xij.
og lids menn harlla fromu.
bragnar lita þeir benia kolf.
og bregdaz alldri j romu.
37. Þu muntt ættla þinum fedur.
at þiggia sæmder meire.
uinna rike uirding medur.
og vega til landa fleire.
38. Enn mig grvnar nv þan ueg þad.
þier mun alldri uerda.
nema þu nioter anars at.
kuad eyder styrkra gerda.
39. Fylkerss(on) nam furdu reidur.
fliott aa burtu ganga.
let þa bua til bragna og skeidur.
beintt áá græden stranga.
40. Sidan skilzt vid sina art.
siklings bavren frægi.
Helga fylgdi herlid martt.
og hellt þa aa salltan ægi.
41. Formodssyner j fagra uod.
ferliga toku at blasa.
austur j haf fyrer olldu grad.
unnar fila<r> rasa.
42. Skioldungss(on) let skeliungs mur.
skipta bardit renda.
er hann at sinni soguni ur.
suo skal aptur venda.
43. Situr nv Logi at londum kyr.
lydi gladdi frida.
kongsens dottur frægd sem fyr.
for um heimen uida.
44. Þann ueg seger at þenna vetur.
þeingils some standi.
fyrr geck sialldan fyrdum betur.
fridur og ar j landi.
45. Austur j Noatun breida borg.
bragnar sogdu heita.
fra eg þar reckvm Fofnis torg.
fiora jarlla veita.
46. Þeirra fader uar þusa gramur.
Þrymur ur jotna heime.
eingi stiller fanzt suo framur.
at felldi brædur af seime.
47. Nefnum Þraen sem Þrand og Liot.
þessa brædur sterka.
þeirra lund uar furdu fliot
og fus til grimdar uerka.
48. Bita onguan bragnna suerd.
blamannz eru þeir likar.
þesser hivgiv uargi verd.
og unnu borger rikar.
49. Þo er en fiordi þeirra mestur.
þad mvnu ytar finna.
Andre þotti orden uestur.
allra brædra sinna.
50. Hann uar bædi blar og digur.
bolvodum tRollvm stærri.
harlla digur og hermannligur.
og huerivm risanum hærri.
51. Har uar ecki hófdi aa.
honum fiell skegg um bringu.
var þad beint sem bikit at sia.
bar hann ei rond ne hringu.
52. Alldri fra eg hann hefdi hialm.
hringa lundurinn sterki.
þo at hann skipte skygdum malmm
og skyfdi froda serki.
53. Fann þann eingi aa froni brand.
fyr um heims bygd alla.
hann at yne hiassa grand.
hrocktizt egg um skalla.
54. Rucia allt hafa rammer brædur.
rænt og eytt med geire.
þeirra her uar þrautar skædur
þess munu giallda fleire.
55. Andra fylger otal hers.
og jlsku þioder margar.
grimmliga vocktu geira uers.
og grenia vpp sem vargar.
56. Einn hvern dag sem Andra þiod.
oll red kat at drecka.
garpren bad þa gefa sier hliod.
grimur og talar vid recka.
57. Eg hefe frett af einne mey.
er af ber hveriv uifi.
visse eg ôngva vella ey.
uallda fegra lifi.
58. Suanhuit heiter silke lind
svdur aa Halôga landi.
mals aa broder st(ra)uma strind.
og styrer skeidar brandi.
59. Þeirra fader er allt uid alldur.
og ecki fær at strida.
þo hefur fyrre fleina balldur.
framizt a londum vida.
60. Synie þeir oss ed uæna uif.
og uirding medur at fanga
þa skal Helgi lata lif.
en Logi a galgan hanga.
61. Segger gripe j samre stvnd
Sorlla hivpen biarta.
uær skulum sækia silke grvnd.
su er mer kær j hiarta.
62. Þar uar hark og geira glamm.
gripu þeir serki bvna.
dreinger stigu áá dælv gamm.
og drogu raa vid hvna.
63. Bendizt uod j stormi stinn.
stod aa hueriv bandi.
gamma ess fyrer Gand uik jn.
geisa sudur med landi.
64. Þegar at hitter hafner aa.
herllid þetta hid stranga.
Andri bidur barma þria.
bratt aa landit ganga.
65. Brædur kanna breidan hiall.
bida letu dreingi.
þeir kuomu Loga j liosa hall.
og litu þar uegligt meingi.
66. Hirden oll er hlyra sa.
horfdi aa þa leingi.
alldri hafdi ferdin fra.
frett um slika dreingi.
67. Andri ste fyrer odlings bord.
jtran kuaddi stilli.
þuinæst talade þesse ord.
þar var skammt j milli.
68. Dreinger segia at dogling þier.
dottur mundud eiga.
þa uil eg fylker fastnna mier.
friggen navdrv teiga.
69. Hilmer svaradi harlla blitt.
er hiartad ber hit snialla.
lat oss heyra heitit þitt.
eda hvad skal reckenn kalla.
70. Aller hugdu eg Andra jarll.
ytar kunne at nefna.
huergi drepur mitt hiartad stall.
hiorfa þing at stefna.
71. Nordur fyrer j Noatun rædur.
nær finz ei min liki.
hefur eg uist og uorer brædur.
unit Rucia rike.
72. Lofdung fær þv leyfi til
londum hallda þinum.
ef þu gefur mier gullaz bil.
og gio<r>er at uilia minum.
73. Hefe eg þad frett at Helgi gaf.
henne erfd med soma
þar skal kongs(on) hliota af.
huorki meckt ne froma.
74. Þicker oss miklu meire sleckt.
min en dottur þinar.
sikling gef med sanre spekt.
suor til rædu minnar.
75. Gior nv skiott en gamle karll.
garps ur male slita.
ollum syndizt An(dri) jarll.
ogurligur at lita.
76. Viser giordi uiturlig suor.
ueita garpnum rika.
bragnnar sau eigi bonordz for.
bradare helldur en slika.
77. Varlla er þad visku plag.
vondu hratt at skipta.
stiller gef til stefnv dag.
stollz jungfrvna at gipta.
78. Andri sagdi einna mest.
undan dratt j sliku.
þo gaf kongi þesse frest.
þriggia natta at liku.
79. Kom þa sialfur milling mot
mier til ueizlu at bioda
sidan festi eg fagra snot.
þui fogur mun hringa troda.
80. Nema þu uilier þeingil hier.
þunder jel at heyia.
livfra er þad miklu mier.
þui mal er ydur at deyia.
81. Fylgia mier seiger þorna þundur.
þusund nytra garpa.
þeir hafa bragnna boluerks tundur.
brotid uid romu snarpa.
82. Þridia kost skal eiga en.
eyder Fofnis skida.
fiora vel millding menn.
mot oss brædrum strida.
83. Þicke mer gaman j geira seim.
gilldings bal at rioda.
eingen þorer nu austur j heim.
oss til holms at bioda.
84. Epter þad geck An(dri) aa braut.
ongum heilsar manne.
kappen huorki kongi laut.
ne kuaddi folk j ranne.
85. Einn ueg talade þræll sem þegnn
þar fyrer herra rikum.
þottizt eingi af flogdum fregnn
fyr hafa adra slika.
86. Brædur hittu bragna sinn.
bvder reistu aa sandi.
hier mun huita horfit uin.
hars ur minnis landi.
2. ríma
1. MIER hefur þegns j þrætu by.
þann ueg brugat uegen ny.
nenne eg ecki navmv gullz.
næsta synia nu til fullz.
2. Skallden binda mansaung myrkt.
meistarliga er þetta yrkt.
sem þeir geyma afmors art.
og elsku feingu af nockurn part.
3. Enn hinum er alldri feingu frygd.
fliodum af edur neinna dygd.
kalla eg lat þeir livgi fra.
logandi asten brene þa.
4. Mun eg þar ecki minnaz áá.
mansaung huerf eg ollum fra.
hvad eg feck af hringa bil.
hafe þad huer fyrer satt er uill.
5. Vanda eg ecki uisum hatt.
uerda folsud kuæden þratt.
gef eg ei um ef gaman er j.
glockt þott meistarar finne at þui.
6. Rima hinn fyrri reiknar þad.
recka sueit at Andri bad.
suinnrar frvr og sætu fedur
Suanhvit fann og talade medur.
7. Bædi greiner bonordz for.
brvdi hann og stillis suor.
Fofnis suaradi fallda lin.
frett hefe adur af bidle min.
8. Wortter rad j uoda statt.
visliga segi eg kongi satt.
þo at þu beriezt vid þennan jarll.
þa er þer radit davdans fall.
9. Þui næst leikur vm landit alltt.
logandi strid og jarnnit kallt.
hellzt til giallda marger min.
mvn oss jarllen taka til sin.
10. Fyr uil eg en felld se aull.
fylkis þiod under boluot troll.
at þu jater A(ndra) mig.
ecki mvn hann þa uar vm sig.
11. Far þu sialfur at fina hann.
fylker skiott vid .x. mann.
herskap onguan haf med þier.
heissu ber þv jarlle af mier.
12. Viturliga seg þu uiser þa.
ef uill hann os med æru fa.
þad er uon bædi bæn og þin.
at brvdhlaup drecki hann hier til min.
13. Sef eg ei fyre arme aa.
vndra mannz en veizlan sia.
setinn er hier med sæmd og kurtt.
sidan flytie hann oss áá burtt.
14. Þesse bæn ef þiggivm uær.
þa skal Andra festar mær.
heita þegar at hilmer uill.
hvad er os uerdi rada til.
15. Eigi skemur en ellefu nætur
orlof fa þu stiller mætur.
at þier buizt suo Andra vid.
at virdar halldi sætt og grid.
16. Kærliga sidan brædrum biod.
budlung heim med sina þiod.
skiran drecki hann skurnar foss.
skal þa jarllen tala vid oss.
17. Herran suaradi hringa lin
hvort er þetta alvara þin.
at binda þig uid boluad troll.
brene upp fyre jorden oll.
18. Væri betra kuad veiga na.
yrdi eg spreingd af harme og þra.
at þer færizt og ferdin oll
fadme eg ein veg þetta travll.
19. Annad segi eg þeingil þier.
þad mun hamingian ueita mier.
alldri nytur An(dri) vor.
oss er livfara daudans far.
20. Hilmer skaltu hlyda um stund.
huad mier byr j sinnv grvnd.
ef þarfnazt ecki þetta rad.
þa er mier horfin gipta og nad.
21. Hiaranda spyr eg heita þann.
huergi leiteg frægri mann.
austur fyrer elfi rædur.
ytum gefur hann baruglædur.
22. Jarll er bædi milldur og merkur.
mikill og uæn sem geyse sterkur.
harlla fridur og hermanligur
honum brast alldri j romu sigur.
23. So er hann uitur at uifit ma.
uarlla ydur þar segia j fra.
ser hann allt sitt seggia ual.
sannliga alt hue ganga skal.
24. Fiora segi eg hann arfa aa.
alla kann eg greina þa.
Harekur er þar holda mestur.
en Hromund pryder somen flestur.
25. Herraud nefne eg hlyrum medR.
hrafnn aa blodi jafnan sedur.
Hogni er sizt uid holda skap.
honum er hvorki um fuss ne gap.
26. Wndra storer orfa biodur.
ecki dæll en jafnan hliodur.
eingin ueit hans afl ne matt.
ellda skalann byger þratt.
27. Þann ueg hefur mier hvgur um þad.
hilmer sagt er uifit kuad.
annad huort edur einge hann.
os mvn frelsa þesse mann.
28. Ha<r>eks geingur hofi vr.
hardligt fordz og uerkinn stor.
hilmer læt eg heyra þig.
honum þicker ecki jafnt uid sig.
29. Halnum fylgia hlyrar .ij.
hreysti fremia jafnan þeir.
bædi er madurenn mikill og uænn.
megtar giarn og at hilldi kænn.
30. Harek fretti fyr til uor.
furdu lezt þa dreingurin knar.
fus at spenna spiallda skord.
spurdi hann giorvoll Helga ord.
31. Stala þollur hefur streingt þess heit
sterkur at fara j epter leit.
brodur minn at beriaz vid.
budlungss(on) med jafn martt lid.
32. Einn hefur brædra brvdi fest.
bragnar leyfa Herraud mest.
herses jod j Huitings ey.
hvn er nv rett hinn uænsta mey.
33. Fader minn hef eg einn finskan mann.
feingit til vid sendum hann.
harlla skiott aa Harek<s> fvnd.
halur kuedz bven j samre stund.
34. Biortum skrifa þv brefvm aa
bon ord vortt seger hringa na.
Harek bio þv havdur og lid.
ef hann uill An(dra) beriazt uid.
35. Andra skulu þier ecki þa
jlsku mætti segia fra.
harlla kenne eg Harek<s> lund.
hann mvn uilia frelsa sprund.
36. Þa munv brædR bregda vid
of brynia sitt hit sterka lid.
hingat koma med herlid martt.
Har(eks) brioster yfrit snartt.
37. Þadan skal Finnuren fara sem ma
fliotliga bædi um lond og sia.
austur þegar aa jarllsens fvnd.
ecki mvn þad forlong stund.
38. Hiaranda skaltu segia satt.
sinnia nidia um ætlan snartt.
oll tidenden oss j fra,
ecki mvn hann þa frynn at sia.
39. Þar mun Hogne nockR nær.
nv er þad syntt hvad ætlum uær,
hitt byr meiR j hugxan min
at hann mun leita brædra sin.
40. Sitie þa jarllen iafntt sem adur.
iofur og uerdi þeye bradur.
þa er min horfin hamingiu uon.
heita verd eg A(ndra) kuon.
41. Flyt þer aptur Finnurenn heim.
er feingit hefur þu ord af þeim.
hirtt þad glockt j hugxan þin.
hvad þeir fedgar tala til minn.
42. Þetta giorezt at Finurenn for.
fliods aa burtt med erinden stor.
skiolldung vill til skeida ga.
skyr sem mællti hringa na.
43. Audling hitti eina bud.
inni drack þar hirden prud.
kom fyrer An(dra) og kvaddi hann.
kempan heilsar stiller þann.
44. Andri suaradi yfret blitt.
ecki martter herlid þitt.
oll skal luta þioden þier.
ef þu uillt Suanhvit gipta mer.
45. Þui kom eg sialfur hilmer hier.
hennar kuediu ber eg nu þier.
fyrer skavmmv taladi eg vifit vidur.
uill hun giarnna at halliz fridur.
46. Einkanliga bad audgrvnd mig.
ecki rioda stal vid þig.
uisliga badum uifit ann.
uill hun huorngi feigan mann.
47. Fram bar oll þau fylker ord.
er friduz mællti bauga skord.
ei þarf tysuar at inna þad.
Andri fester fliod j stad.
48. Oll skal hennar bænen blid.
bradliga ueitt aa huerri tid.
uilie mier unna jtruzt snot.
ecki læt eg henne j mot.
49. Hier skal eg drecka Þeingill uid.
þessa stund og allt mitt lid.
traustar bindum trygder uær.
ef tæler oss ecki en biarta mær.
Hier = ath. þier (?)
50. Andri tok uid festum fliott
fridur uar gior med allre drott.
þui næst geingur þeingill burttt.
þegar er þad so uida spurtt.
51. Anan dag j audlings holl.
An(dri) geingur og hird hans oll.
Suanhuit drack hia segium nu
sau þeir alldri uæni fru
52. Æ uar hun uit Andra blid.
eingin fann áá brudi strid.
skeinkt hun honum hit skira uin.
skemti hann sier uid bauga lin
53. Þar nam bida þrettan nætur.
þa gaf An(dri) at fædztu gætur.
so uar hann af astum odur.
einskeins gadi hiorfa riodur.
54. Nu skal segia af ferdum Fins
full uel honum at sliku uinzt.
þurfte hann huorki far ne fley.
hann fann þa brædur j huitings ey.
55. Harek kuaddi og brefit bar.
birt er honum j letre þar.
sanliga allt þad sagdizt fyr.
segguren þoldi uarlla kyr.
56. Harek talar med hlyrra sinn.
hefur þad kongurenn skrifat til min.
stolltar fru sem lad og land.
leggia bydur hann os j hand.
57. Þad er mier syntt at hamingian hrein.
hun heidrar os j huerri greinn.
buglungs dotter byzt oss su.
er bragnar kalla uænsta nv
58. Ek skal frelsa hit fagra uif.
fyr en hennar ed unga lif.
ligge aa suortum Andra armm.
ecki ma eg uita þann harm.
59. Skatnar take hin skygda brand.
skulu uær nordur aa Haloga land.
siglla þegar og sækia fliod.
og sedia af dreyra Fenris iod.
60. Einggen brædra mællte j mot.
vist uar þeirra lunden fliot.
fyrdar stigu áá flædar dyr.
og feingu þegar en besta byr.
61. Seglen blika j stormi stor.
stytti uod vm siglu jor.
ægis strauk en biarta brun.
bragnar settu Ra uid hun.
62. Harek talar uit hreysti menn.
herdit reidan aller senn.
suiptit alldri seglum af.
saukue fyre skeidur j kaf.
63. Kappar sigla kolgu grand.
koma þeir nordr aa Haloga land.
logdu kongs j liosa hafn.
lyder festu dælu hrafnn.
64. Stoltar herin strondu aa.
sterkar buder reisa þa.
brædur ga til hallar heim.
og holdar nyu er fylgdu þeim.
65. Andri þar med ytum dreckur.
ecki uard hann flestum þeckur.
hirden litur holda .xij.
er hallar stigu áá uænligt golf.
66. Harek geck fyrer hilmer þa.
heilsar Loga og mællti suo.
dogling gipt mier dottur þin.
dyra elska eg audar lin.
67. Wiser suaradi uarlla stritt.
ueit eg Harek erindit þitt.
fru er odrum fyrri jad.
frestazt munu þui þesse rad.
68. Harek su(arar) hirdum uær.
hilmer litt um festar þær.
þad uar yduart bleydu bragd.
at binda hana vid þuilikt flagd.
69. Beriumzt fyr aa beslu hest.
bragnna sueit af kappe mest.
en suo ferligt feiknna troll.
fadme dygdug menia þoll.
70. An(dri) þotti þrvtnna vid.
þesse ord af jarllsens nid.
heyra matte Ha(rek) þa.
hann hleyper brvn og mællte suo.
71. Huert er þetta graligt grey.
er gabbar uora festar mey.
diarfara sa eg ei daligt fol.
deyia skal fyrer þridiv sol.
72. Harek taladi hreysti uidur.
heyr þu hin lioti gygiar nidur.
þig skal eg senda aa Satans fvnd.
suartara leit eg aunguan hund.
73. Þegar at lyser lopt og hrund.
leikum Dualens a morgunstund.
kom þa fram aa uidan uoll.
vid skulum rioda hlifar troll.
74. Segger munv fyrer silke lind.
sedia af blodi Fenris kind.
Herra Logi og hringa skord.
hallda skulu sin giorvoll ord.
75. Andri skellur upp og hlær.
ætla eg rett at hann se ær.
branda leik og beiskan styr.
bioda þordi oss eingin fyr.
76. Harek geck ur hollu burtt
hafa kuedz eingi Recka spurtt.
fyrri slikan frægdar mann.
ferdin giouoll lofadi hann.
77. Syner Hiaranda sina drott.
sanliga letu uopnaz skiott.
herinn byzt uid hrumþueings land.
Hogna sueip og franan brand.
78. Brædur fylkia aa fagra grund.
fridu lide vm morgun stund.
uæni matti ei uirda sia.
uist ef hamingian styddi þa.
79. Andri tekur j eggia þey.
orlof sinnar festar mey.
fylgiaz þesse feikna þiod.
fram aa uoll þar herinn stod.
80. Byzt þa jarll j branda goll.
brynivm skyrdizt hirden avll.
þesse er flockuren furdu strangur.
aa flesta kom þa berserks gangur.
81. Andra lid med ope fram.
æder þegar j skiallda glamm.
sizt uar rott um Recka þa.
riman falli þan ueg sia.
3. ríma
1. GREIPar hleypur gvsti ur
gres hin þridia sneckia.
greinum hitt at styriolld stor.
stod um Harecks recka.
2. Fram aa þenna fagra uoll.
fyrdar þesser kuomu.
ogurlig uar skiallda skoll.
er skatnar uekia romu.
3. Heimen fylldi hliodi af.
harder ludrar gialla.
heyra matti um haudur og haf.
harda breste og skialla.
4. FylkingarnaR furdu huast.
fram geck huor aa adra.
randa laukur j ritum brast.
hratt flo unda nadra.
5. Ber uar skioldur enn brotnna suerd.
brandar skygder sungu.
oruar gaflok eitre herd.
yta hiortun stungu.
6. Hrafn uar katur en hlackar ornn.
hartt stod ulfur a uigi.
under drucku ylgiar born.
ott af gomla stigi.
7. Blodit dreif um boduars sky.
brustu skilder rauder.
hrottar skiptu heila by.
hermenn fiellu dauder.
8. Þrandur og Liotur þreyttu ij.
þundir jelit stinna.
Harek<s> bragnna brytia þeir.
med breidum fetla linna.
9. Þrandur og jarllsens þegnar tolf.
þeim ma standazt eingi.
holda rufu þeir hrumnings golf.
mc. felldi meingi.
10. Andri od j fylking fram.
fyrdum aflar navda.
segia huern er suerdid nam.
sa uar kiorenn til dauda.
11. Jarllin styrdi greypum geir.
og giordi breida skeinu.
alldri fære en fim og tueir.
fiellu j hoggi einu.
12. Badar hendur blodgar uann.
ber sa jarllinn sterki.
fylking alla felldi hann.
framan at Harek<s> merki.
13. Þordi eingi Þundar elld.
ar vid A(ndra) rioda.
þui uar Harek<s> hirden felld.
half af steypi gloda.
14. Syner Hiaranda af aflli en.
einartt uega med prydi.
hondum badum hoggua j sen.
hrausta Andra lydi.
15. Hromundur reid ur fylking fystur.
fram at berserk einvm.
Ramliga hio af reidi bystur.
reck med brandi hreinvm.
16. Suerdit snidur hofud og hialmm.
hals og bringu suarta.
sterka ravnd og stælltan malmm.
stadar nam oddur j hiarta.
17. Odrum syndi hann enda dag.
en at randa fiuke.
þeim gaf Hro(mundr) hætligt slag.
höfudit fiell af buke.
18. Tuttugv let sa tiggia nidur.
traustar kempur falla.
flester toku at flemtra uidur,
at finna Reckenn snialla.
19. Alldri snyrre hann aptur aa leid.
afrek girnnazt uilldi.
fram j midia fylking reid.
og feller menn at hilldi.
20. Sa het Þraustur er þessa bidur.
Þraenn og red at kalla.
halrenn berst þu Hromund uidur.
hann hreckur oss næsta alla.
21. Þraustur let uid suerda saung.
seggi marga hniga.
jarllsens mæta merkis stong.
madur ber sa til uiga.
22. Kappen rudde beina braut.
bragnna otal felldi.
unnzt hann fann þann fleina gaut.
Fiolnes uo med elldi.
23. Þraustur hio so þotti undur.
þegar med aflli nogu.
Hromundz skilldi skipte hann sundur.
og skyfdi hest uid bogu.
24. Stock ur sodle seggurenn þo.
sazt hann ecki falla.
þegar aa mote af magni hio.
meider grettis ualla.
25. Hromund snidur hrumnings falld.
honum uard eingen frægre.
Fiolner snidur fafnis tialld.
og fylger armurinn hægre.
26. Merkit fiell enn þornna þund.
þotte erfitt ueita.
þegar uill sar j samri stund.
segrinn undan leita.
27. Hromund karllar harre raudd
heyr þad Andri en sterke.
farliga er þin fylking stôdd.
þui fellt er ydart merki.
28. Jarllen su(arar) er suerden raud
slikt ma kalla garpa.
hefur af erggi byckian blaud.
barizt vid reckenn snarpa.
29. Wil eg þann finna uella lund.
uid hann skal eg sialfur strida.
Hro(mund) syne eg heliar stund.
hann ef þorer at bida.
30. Hromund ecki hrædez enn.
hiartad ber hit snialla.
huor mot odrum sokte senn.
suipter fofnis palla.
31. Þegar at Hro(mund) hoggua ma.
hann red jarllen finna.
af ollu reider afle þa.
unda snarpann linna.
32. Hliop j lopt og hoggua red.
hartt j skallan breida.
þeim uar allra lista led.
lundi frægins heida.
33. Suerdit gall vid grimligt undur.
giordi ecki at bita.
mæker stôck j midiu sundur.
mega þad dreinger lita.
34. Glotti Andri er heill uar haus.
hrottan giordi at lyia.
Hromund stod þa hlifar laus.
og huergi uilldi flyia.
35. Hofud og fiorue hiorfa lundur.
Hromund life suipti.
mitt j midiu mannen sunndur.
mækis egginn skipti.
36. Hromund fiell uid hreysti nægd.
hrosar jarllin sigri.
han<s> uar lofud af frydum frægd.
fram od Þrandur en digri.
37. Hareks fann hann merkia mann.
meider gargans hlida.
sundur j midiu seggen þann.
med suerdi giorde at snida.
38. Harek<s> merki er hogguit nidur.
harder skillder klofna.
þa var sidzt med fyrdum fridur.
fylking oll tok rofna.
39. Berserkiner briota stal.
bens med sterkum nav<d>rum.
ferden hne vid flavgar mal.
og fiell þa huer at odrum.
40. Hrædilig uar hrotta skur
hardar fifur gialla.
blod um grunder benium ur.
breider straumar falla.
41. So uar giorlla Hareks her
hnigen j davda sannan.
fyrri uilldi falla huer.
en flydi nockur annan.
42. Mæter brædR j mala fund.
morgum attv at ueriazt.
ualuren þackte uida grund.
uarlla er Rum at beriazt.
43. Heraud talar med HaRek þa.
vid hoggum stort med brandi.
þier munud riodan ristel fa.
og rada Haloga landi.
44. Harek su(arar) herligt uif.
eg hugda fa med prydi.
eg fysumzt meir aa frægd en lif.
uid fellum Andra lydi.
45. Margan skal fyrer menia grund.
meida hialmen biarta.
megi þad spyria megtugt sprund.
mitt skalf alldri hiarta.
46. Andra her at ytum þeim.
allur af magnni sokti.
Harek uegur med hondum tueim.
harlla erfitt þotti.
47. An(dri) talar uit alla senn.
ongua hefe eg frægre.
þegna sied en þessa menn.
og þiggia lister nægre.
48. Þrandur en digre þu skallt nv.
þegar uid Heraud reyna.
hygg eg ongu þurfer þu.
af þinni hreysti at leyna.
49. Fram od Þrandur at fylkes nid.
ferligur uar þa hafle.
Herravd bilada huergi uid.
og hio med ollu afle.
50. Hialmen snidur suerd j sundur.
suofnis pryddur pelli.
skiold og bryniu beit sem tundur.
brandurin stod j uelle.
51. So uar þungligt þetta slag.
Þran[di) er buit at falla.
huorki veitti hogg ne lag
hreyter naudru ualla.
52. Heraudur ser at suerdit ma
seggen ecki bita.
boluadan hleypur hann berserk aa.
bender sterkra rita.
53. Allt uar senn at undra mann.
upp tok halRen gilldi.
ferliga nidur færdi hann.
og fiorve suipta uilldi.
54. Þraenn var nær og þetta sa.
þa hue munde ganga.
skiotliga uillde skaka þa.
skatnna leiken stranga.
55. Randa aullur af reidi og þiost.
Reckuren þangad uendi.
hoggur fram aa Her(rauds) briost.
med huossum benia uendi.
56. Brotnar hlif en beiladi gerd.
beniar syndu ædi.
Herra(ud) snartt hit snarpa suerd.
sneid hans<s> holld og klædi.
57. Oddyrinn Ristur allan kuid.
aa þeim garpi snialla.
þegnar biarga Þrandi uid.
þa uard jarlls(son) falla.
58. Her(raud) alldri hreysti fal.
hiartad kendi mædi.
seggurinn legz j saran ual.
sier at spenner klædi.
59. Harek bra sier huergi vid.
hlyrra sinn leit falla.
ecki hirtte hann vm grid.
þott hollda misti hann alla.
60. Renner mitt j fylking fram.
fyr en æfi luki.
morgum ueitti hann skiota skam.
og skildi hofuð fra buki.
61. Var hann auR suo uit geira grer.
gumne ædar frægia.
sem þad lion at olmmazt er.
og ongu giorer at uægia.
62. Harek feck af fyrdum enn.
frægdar ord stir sannan.
flockum ræntti fiorue menn.
og felldi huernn um annan.
63. Kappans let hinn frane flein.
fyrda æfi lida.
þeyi nockR þorde neinn.
þar uid jarlls(son) strida.
64. Ogurlig uar jman sia.
ollden Harek sotti,
diarfliga hiellzt um dagana þria.
dreingium erfitt þotti.
65. Andri talar og eggiar þiod
aller take þier hrockua.
bere þier skiolld at skioma riod.
skal þad hilldi slockua.
66. Ferdenn kring um geira gaut.
giordi skialdborg langa.
Herians uar þui hallar skraut.
huergi rum at ganga.
67. Harek synde hreysti nogtt.
hellzt af mætti sniollum.
stock hann ut yfer skialldborg skiott.
stals med hlifum allum.
68. Hver mann lofadi hilmes kund.
hiorua uiduren fride.
hann stod þa kyr aa grænre grund.
geysi modur af stride.
69. Hatt nam kalla hiorfa riodur.
honum uar buit at springa.
suo uar bædi sar og modur.
suipter ofnis bingia.
70. Harek talar med huella raust.
hier mun yðuar bida.
hvortt hefur Andri ecki traust.
oss j moti at strida.
71. Þv hefur fest þa fallda nipt.
er fyrdar Suanhvit kenna.
daliga er su drosen gipt.
er dreing skal blavdan spenna.
72. Andri kalla eg argan þig.
artt ma slika spotta.
segger uilltv at sæki mig.
en sialfur fiare skotta.
Vísur III. 71-72 eru í Fornyrðum lögbókar, bls. 89.
73. Fram of Andri fare spenttur.
fra honum aller stockua.
ramliga var hann af bolinv brendur.
bar hann þa aasian dockua.
74. Harrek þreif upp storan stein.
huergi tru eg renni.
þegar og setR med þvngri grein.
þuert j jarllsens enni.
75. Þui uard huergi áá hoggum hle.
horku synde alla
berserkurenn áá bædi kne.
bragnar litu þa falla.
76. Þioden upp uid þetta undur.
þys med afle greypu.
fyr hefur alldri fleina lundur.
feingit slika sneypu.
77. Andri spratt aa ôflga fætR.
ecki huildar beiddi.
þess mun giallda garpurenn mætur
geir med afle reiddi.
78. Fiolner brast en hringan hrock.
hlifen dugdi eingi.
hofudit j burtt af striupa stock.
stod þa bolurenn leingi.
79. Harek tapade list og lif
lyder enda hilldi.
feck hann ecki hit fagra vif.
for sem Andri uilldi.
80. Ferdinn aa uid fleina uers.
fogrum sigri at hrosa.
anan helming A(ndra) hers.
uger uifit liosa.
81. Hilmis gar til hallar þiod.
handings logdu uoder.
seggia drotten sar og mod.
sueiten tok þa nader.
82. Þegar uil A(ndri) anan dag.
ærligt brvdhlaup drecka.
þeyi girnniz þuiligt slag.
þiggia fleiri recka.
83. Frids mun uerda ferdar nest.
falit af hringa lvndi.
þar sem Berlings baru hest.
braut j greina sundi.
4. ríma
1. Gjllenn sa sem geck fyrer sol get eg at hrindi
fiorda sinne j feniv uindi.
færa og gledia motra lindi.
2. Mier la fyre orkan styrs j ollv fange.
nu er eg modur af mærdar gange.
mig piner sa harmurenn strangi.
3. Hugsa eg þratt huad oligter þa um uill skipta.
edli manz og ollu suipta
yndi og nad er forlazt gipta.
4. Eda þa fyst at formazt lif med frygdar greinum.
verdur allt at uilia hreinvm.
veit mann huorki af kuol ne meinvm.
5. Duger þa ei med uidris magt verknnad þenna.
sa ueit giorzt er sialfer kenna
sier aa slikt og þrauter spenna.
6. Eptir þenna eggia leik er An(dri) hadi.
Suanhuit hugdi at sinu rade.
syndizt standa næri uodi.
7. Su het Gyda er gaufgre þionar gullazt grundu.
uifit talar uid uella hrundu.
uid skulum buazt j samre stundu.
8. Sannliga uilldi eg sara drott kuad sætan kanna.
uita huad lifer j ual<n>vm manna.
uirdar mega þad eingin banna.
9. Sa eg j dag kuad dreglla skorden drifu suerda.
arfa jarllsens aflle herda.
onguer munv þeim frægre uerda.
10. Þorngrund. su(arar) þessa muntu þurfa uarlla.
s(onu) Hiaranda Suanhuit alla
sa eg j dag med prydi falla.
11. J ualen er ecki uifum færtt ne ueikum monnum.
draugar nista dreyrvgum tonum.
dauder bukar liggia hraunnvm.
12. Ek hrædumzt ei kuad hringa skordden hrotta liota.
nauman gullz skulum neyta fota
en naerner kyrrer liggia hliota.
13. Ristell uard at rada þa fyrer refla hilldi
Gyda uard hrædd þott ganga skyllde.
giordi þo sem fliodit uilldi.
14. Diupa odu dreyrra rost droser leingi.
Suanhuit kannar sarra dreingi.
suipter jafnan dauda meingi.
15. Hun kom þar at sem. Her(raudur) la huldur skilldi.
nv hefur fundit uif þann uilldi.
at uisu lifer sa halren gilldi.
16. Klædum suipter audar eik af ygiar flædi.
saumar kuid med silki þrædi.
saman og stodvar benia flædi.
17. Sidan bindur saren um med sinnu alla.
dreyper vine aa dreingen snialla.
dara hlynur gat mællt þa uarlla.
18. Hann spurdi fyst huad friggenn hiete fofnis stetta.
Suanh(ui)t halnvm seger af letta.
sannliga allt huad hann uill fretta.
19. Hugdi eg minzt kuad malma þor at megtug kuinna.
þetta munder þora at uina.
þer hier oss j ualnvm finna.
20. Þig skal eg græda garpR um heillt kuad gull hrings þilia.
gefur oss þad suo glogt at skilia
godu munttu launa uilia.
21. Bruder reisa upp bragnnings kund med brogdum fliotum.
haluren legzt aa herdar snotum.
honum er ordid stirtt aa fotum.
22. Þau fa logx unz litit hus aa lade finna.
ganga þangat med garpen suinna.
og giordi honum suo hægtt at uinna.
23. Her<r>aud lagdi j hæga sæng su hringa þilia.
Suanhv(it) mællti af mivkum uilia.
munu uid hliota fyst at skilia.
24. Ek mun sett áá brudarbeck kuad bauga þella.
þitt mun briost af sutum suella.
sannliga kæmi eg hingad ella.
25. Gyda skal jarlls(on) geyma þin med gledi alla.
mæren kyste kappan snialla.
kæn og geck til sinnar halla<r>.
26. So leid burtt en suarta natt af sortum uagna.
uill þa A(ndri) ueizlu magna.
uirdar skulu þui hofi fagnna.
27. Reckar pryddu ræses holl med ristne stæsta.
trapizsu reistu garpar glæsta
giortt er allt med uirding stæsta.
28. Kongsens sæte er kogrum prytt og kolgu lioma.
þeingill skipadi þad med soma.
þar næst An(dri) og hirden froma.
29. Aull uar sett hinn hafa holl med heidre sonnum.
horn og spirur ker med kônnum.
kruser og skurner baruzt monnum.
30. Bikarar og kupur ker og skaler kappar spenna.
vin og miodur aa uarer renna.
uænan bior og piment kenna.
31. Þar uar druckit allz kyns aul med jtRum soma.
husit lek j hrannar lioma.
huergi litu menn slikan bloma.
32. Bruder komu j breidan sal fyrer budlungs uelldi.
uar sem lysti af loganda elldi.
lyduren þar uid gamanit selldi.
33. Meyia flockur er pelli pryddur og purpura fridum.
Suan(huit) skin j fofnis hlidum.
sannliga leyndi hun harmi stridum.
34. Þrandur stod fyrer budlungs bord. og brudguma skeinkti.
eingin madur þar anan kreinkte.
aller þar aa faugnud þeinkte.
35. Diarfer standa dreinger .xij. fyrer dyrunum hallar.
uordenn hieldu hetiur sniallar.
þeir eru A(ndra) kempur allar.
36. Wirdar plaga med uegsemd þar ueizlu stinna.
nv skal Finnz af ferdum inna.
fliods hann giorde erinden uinna.
37. Næst hann heyrde Harek<s> ord halurenn skundar.
austur þegar til jarllsens fundar.
allan ueg med kappe stundar.
38. Fyr kom hann til elfar austur ur ollv klandri.
enn þeir brædur aa Halogalande.
honum leizt eingi aa ferdum uandi.
39. Hiaranda fann hann breida borg og budlungs sæti.
sendimadurinn frar áá fæti.
frægan kuaddi hann landa gæte.
40 Jarllen su(arar) suortum Finne synt af reidi.
ber sem fliotaz fanturen leid.
fram þin erindi bauga meidi.
41. Þu munt færa haluren heimski er hingat uendi.
jll tidinden oss at hendi.
oþock hafe su at þig sendi.
42. Finnuren gioruoll fruinnar ord fylki sagdi.
honum leizt jarll med grimdar bragdi.
garpurenn sat þo kyr og þagdi.
43. Epter Finnzsens endat mal fra eg ansa stilli.
vora s(on)u mvn A(ndri) en illi.
alla drepa med litla snilli.
44. Synizt mier at Suan(huit) hafe med slægdum ôrmum.
ollum feingit bana Rad bôrmum.
en brudurenn mun þo stodd j hôrmum.
45. Hyggur hun oss munv hraustra barmma hefna uilia.
þad mun suanenn þykiaz skilia.
þa mun frelsud hringa þilia.
46. Langt mun allt fyrer Noreg nordR aa nausta heste.
hallda þo at ei byrren bresti.
buner skulum aa manadar fresti.
47. Audþoll duga þa oll sin rad med ongu hote.
meydom tru eg hun myssa hliote.
mansens ecki leingi niote.
48. Þagnar jarllen þrautar illa þotti Finne.
erinden horfa sinn at sinne.
sannliga lagdi hann ord j minne.
49. Reckurinn leit þa risa aa fætur raum und palli.
hofdi ollu hærri en jarlli.
honum leizt næsta stygd áá karlli.
50. Kufle suortum klæddur er hann. en kadli spendi.
dreingurin horfdi áá dara bendi.
diarflig fram fyrer jarllen uendi.
51. Hognna þottiz Finnurenn fliott at mali kenna.
mann sa hann onguan meire en þenna.
mega af sliku fretter renna.
52. Hogni talar af hordum mod uid hringa meide.
giorezt þier fader áá ferdum leidi.
farliga tekur þa mellta reidi.
53. Bæde hefur þu bryniat folk og baru hesta.
þui skal leingi ferdum fresta.
eda huad skal þier j radum bresta.
54. Heitare munde Hare(ks) lund ef hefnna ætti.
garpuren þin j geira þætti.
get eg at uarlla bida mætti.
55. Streinge eg þess kuad Ho(gni) heit med hreysti at uinna.
hefna allra brædra minna.
og huergi niota garpa þinna.
56. Ek skal A(ndra) limum og lifi liotu skerda.
berserkiana bane at uerda.
brædra han<s> j iele suerda.
57. Einn skal eg þessari allri þiod eyda stale.
budlungs dottur brena áá bale.
bra suo Hog(ni) sinu male.
58. Sidan heilsar seggi áá .þar suipter gerda.
reckurenn byst sa hratt til ferda.
rett j stad nam uti uerda.
59. Hiaran(di) nam harre raust aa Hog(na) kalla
geck til motz uid garpen snialla.
greider talade hrumþueings ualla.
60. Heitstrenging uar heimslig þin suo heyrde eg alldri.
fyri slik af fleina balldri.
fullan tel eg þig upp af skualldri.
61. Tak nv aptur fare fylldur folsku slika.
Hog(ni) veik at halnum Rika.
honum kuedz ecki þann ueg lika.
62. Hier skal eg efna ord min oll og ecki duelia.
ydur mun heima hrædzlan kuelia
hiedan af skal eg þig blaudan telia.
63. Hvad mvn duga at hepta þig þa hlyre tiggia.
þu munt fara sem leider liggia.
liten hlut mattu at mier þiggia.
64. Hier er ein skyrta skalltu bera j skurum rita.
hana mun ei eggiar slita.
huorki jarn ne hrottar bita.
65. Þu muntt ganga um þyckua mork og þeyi hreina.
j riodre sier þu standa steina.
stora tuo sem eg mun greina.
66. Hier er einn sprote er spretta skallt áá spille[er] rita.
storum kyrt aa steinen huita.
af stundu muntu duergin lita.
67. Kialar og Froste brottu bergi barmar rada.
duerga hefe eg til hagleiks bada.
hoska kentt og fleiri dada.
68. Kialar ber þu kueidiu mina kappen blida.
dreingurinn lattu duerga smida.
þier dyrligt uopn og hand hofn frida.
69. Sialfur skaltu segia fyrer hvad segger uinna.
ongua mattv fliotari fina.
fyr til allra verka sinna.
70. Sidan fæ eg j fylgd med þier þa Frosta bada.
þeirra munttu þurfa rada.
þad er mer synt þu kemur j uoda.
71. Far nu uel kuad hreyter stals og heiler finnunzt.
sidan skal eg ef uær til uinnunzt.
uitia þin ef þrauter minnunzt.
72. Hog(ni) skilz uid fodur sins fund og fyst nam ganga
skiotliga fram aa skogin langa.
skyra braut nam halur at fanga.
73. Letter ecki ferdum fyr at liosu kuelldi.
dreingurinn hitte duerga uelldi.
digrum sprota aa steinnen skelldi.
74. Eikinn skialldi ecki har kom ut at bragdi.
hvort skal manni edur mattar flagdi.
mega hier heisla at duergurinn sagdi.
75. Dara ecki dreinguren oss en dockua leida.
Hog(ni) nam sitt heiti at greida.
og huerss at fader hans kunni at beida.
76. Wæri eg skylldur at Uestri kuad fyrer uinattu frida.
grams at giora bedne blida.
grein huad þu uillt lata smida.
77. Þid skulud giora mier kynstra storra kylfu eina.
styrkit hana med stalit hreina.
suo stæri lite ei fyrdar neina.
78. Fram aa rot og aptur áá skapt med atta spongum.
sett og giord med golldum longum.
gefi hun sig uid hoggum ongum.
golldum = Líkl. misr. fyrir goddum
79. Sextan bid eg at breidum spongum broddar halldi.
og so þung at virdar ualldi.
uasker fim j uopna hialdri.
80. Fram ur enda fleinn suo digur at fliuge j gegnum.
bædi hlif og briost aa þegnum.
bili hun ei uid galdre megnum.
81. Fyr en sedz hin fagra sol aa fiollum skina.
lat til reidu ruddu mina.
Rett skal ecki ferdin duina.
82. Þid munud frændur fylgia mier sem fader minn beider.
uerda mætti ueginner greider.
ueit eg þier eru kunnar leider.
83. Þeckr sagdiz þetta mundi þora at uinna.
Hog(ni) ga til husa minna.
halur er leiddur j bergit stinna.
84. Þar uar Hog(ni) þessa natt og þegat at lysti.
jarlls(on) þa til ferdar fysti.
ferliga leik honum grimd j brysti.
85. Þar ser liggia malma meidur aa millum steina.
kynia stora kylfu eina.
Kialar uar nær og so nam greina.
86. Þigg nv Hognni hlifar grund at hringa balldri.
þetta stal mun stokua alldri.
sterk ne bila j neinum galldri.
87. Garpuren suarar og knaliga þrifur kylfu biarta.
su skal A(ndra) j skallan suarta
skiotliga reynd ef duger mitt hiarta.
88. Hog(ni) kuad hana hægtt at reida hondum badum
þetta uopn hann þackar dadum.
og þotti giortt at sinum radum.
89. Sidan geingv segger fram at sildar grundu.
liten bat at bradi fundu.
bragnar sogduz eiga mundu.
90. Kialar bad stiga kappan ut áá kalldan naucka.
skal sa briota barv dôcka.
brigdu skiott mun leidenn hrockua.
91. Þeir reisa lauk. en renna uod at radum sindra.
bylgiur þegar bordum hrinda.
byr tok eigi skiott at hindra.
92. Duergar stigu aa dælu orm. en dreingnum frida.
þotti hartt aa hufum rida.
hrana jor uid olldu þida.
93. Atta dægur at auflger letu ytar sueima
olldu fil um alfa heima.
unzt at landi skavt ur geima.
94. Holdar kenna Haloga land og hafner fundu.
þad uar allt aa einne stundu.
at ytar brudlaup drecka mundu.
95. Duergar bioda Ho(gna) heim til hallar uitia.
nv munv uirdar ueizlu sitia.
ueiter suaradi augglis fitia.
96. Ryf eg huorki rad ne slægd med rædu langa.
allan sigurin ætlla eg fanga
elligar bida daudan stranga.
97. Þid skulut kynda hit biarta bal áá breidum uelli
medan eg lyfia A(ndra) elli.
en eg mvn styra veizlv spelli.
98. Geingur sidan garpr aa land med grimd og modi.
bragnar kynda bal hia flodi.
burttu kasta eg þannenn odi.
5. ríma
1. MJTT er sindra sota bland.
fyrer suptungs dottur jnne.
set eg þui faltt uid fræda land.
fyr at bedne þinne.
2. Batt eg fyre brudar nafn.
brognum adur under.
þylivm en áá þrætu hafnn.
þa þickia skemre stunder.
3. Nu skal fræda folk áá þui.
at forlôg Andra hrucku.
holdar jarllsens hofi j.
harlla kater drucku.
4. Segizt þad fyr af silki hrund.
Suan(huit) plagadi kuendi.
fyr en bædi grafnnings grund.
grams til hallar uendi.
5. Bradliga jn j brvdar rann.
budlungs dotter kendi.
foluan ganga Finnenn þann.
er fyr til eluar sendi.
6. Bruduren fagnar brodda þund.
bradliga giorer at fretta.
hefur þu komit aa Ho(gna) fund
haluren grein oss þetta.
7. Fann eg jarllen fallda skord.
Finurenn þetta sagdi.
Hiaranda bar eg huertt þad ord.
sem hringþoll fyrer mig lagdi.
8. Jarllsens greiner gioruoll suor.
greider oglis stetta.
uisse hann allt um uora fôr.
uar þad ei til letta.
9. Mætum sagdi meydom þin
mega skyllde A(ndri) spilla.
en mannsens sidan menia lin.
þu munder niota jlla.
10. Seg þu þa kuad seima bil.
sender biartra stala.
hvad þa lagsi af hreysti til.
Ho(gni) uorra mala.
11. Heitstrenging nam hann at tia.
haluren uifi milldu.
þig kuedz bali brena aa.
bauga hlynuren skylldu.
12. Hliop j burtt fra hilmis þiod.
og hafdi uopna ecki.
sidan ma eg ei sætan riod.
segia af odda hnecke.
13. Þorngrvnd seger ef þannen fer.
þad sem jarllenn spadi.
huerssu ma þa uerda ver.
voru hattad rade.
14. Ef Ho(gni) er seger gullaz grund.
grimur j hiarta sinu.
vænti eg þess um laufa lund.
line þo stride minu.
15. Bol fann eingin brudi aa.
bar hun sorg þo j hiarta.
seger letu j sæti þa.
seima þollu biarta.
16. Liosri sidan linna und.
liliur satu tuinna.
A(ndri) hugdi eigi vm stund.
jllt til rada sinna.
17. Tolf berserker traustan uord.
trulega letu efna.
þeir sau mann fra mæfils jord.
mikinn at hollv stefna.
18. Suartann kufl og suard reip bar.
sueiger drakons heida.
gadda kylfu at garpuren þar.
giordi um ogxl at reida.
19. Hann nam þegar at heite einn.
hringa lundur at fretta.
sa uar ei j suorunum sein.
hann seger þeim allt af letta.
20. Hogna giorer mig hirden aull.
Hiaranda s(on) kalla.
ganga uil eg j glæsta holl.
garpa at lita snialla.
21. Berserkerner sogdu hann
sæmre uti bida.
þu skalt helldur en mikle mann.
meiddur aa burrtu skrida.
22. Hog(ni) slo þann honum uar næst.
hogg med kylfu sinne.
grimliga feck hun gadda læst.
garps j lioda jnne.
23. Annar feck suo farligt slag.
fiorue sinv tyndi.
odrum fiorum endadag.
ytvm kylfan syndi.
24. Hrauckua undan holdar bratt
hiner lifet fanga.
H(ogni) kastar hurd aa gatt.
hartt red jnn at ganga.
25. Garpuren greider gillda raust.
gall j mur og uegium.
ei ste hann til jardar laust.
otta baud þat seggivm.
26. Drap þar allt ur dreingivm hliod
so drecka þordi eingi.
ferliga uard af felmtri og mod.
fault hit dyra meingi.
27. Reckum syndiz randa alfur.
rise hia A(ndra) jarlli.
fyrdar sogdu at fiandin sialfur.
færi þar med karlli.
28. Ho(gni) kom fyrer kongsens bord.
og kenner sialfan Andra.
Þrandur sazt med þiassa ord.
þar fyrer bordi standa.
29. Hog(na) uard þa honden laus.
haluren kylfu reiddi.
ofan j Þrandar halan haus.
hogg med apli greiddi.
30. Berserk<s>ins nam heila holl.
hord i sundur at riuka.
brotnnar j su<n>dur beinen oll.
blodit fauk um duka.
31. Hog(ni) slo med hondum tueim.
huernn er þa til nade.
flestum bydur Fiolner heim.
ferd uard ecki at radi.
32. Recksens giordi reikar holl.
ruddan sundur at skerda.
þotti aa bodenv beina spioll.
brognvm orden uerda.
33. So uar hræzlan gorpum glogg.
gefen fyrer ordstir fliotan.
bligdu þeir sem boli uid hogg.
og bidu suo daudan liotan.
34. An(dri) stod áá oflug bein.
epter Þran(dar) dauda.
talar hann þa med grimdar grein.
giorezt nv stefnt til nauda.
35. Vissa eg alldri uerda bilt.
woru þannen meingi
at suo skal lif fra skotnum skilt.
skal sig ueria eingi.
36. Kenneg Ho(gna) Harek<s> brædur.
hefnda er komen at uitia.
diarfliga uerdur nu dreingium skædur.
duger ei lengur at sitia.
37. Brædur hrinda bordum fram.
burtt med reidi heita.
þar uar hark og g<e>irra glamm.
hoggua er skamt at leita.
38. Sextiger feingu segger jarlls.
soknn er hord med ollu.
hardan dauda af kylfu karllz.
adur kappen geck ur hollu.
39. Seggurenn uilldi salnum ur.
sa uar komen j vanda.
Hog(ni) gefur þa hoggenn stor.
hinum vid dyrnar standa.
40. Berser(kerner) hoggua hann.
halur nam ut at ganga.
skyrtu ei skedia kann.
skall þeim hogg uit uanga.
41. Holdar attu heliar sut.
harlla sara at bida.
þa kom sialfur Andri ut.
og oll hans hirden frida.
42. An(dri) hio med onguan frid
ôrtt til Ho(gna) at bragdi.
biortum slo hann brandi vid.
bitru hlitar flagdi.
43. Sueiten oll er sokti nær
segg med kappi nogu.
Ho(gni) lemur aa hendur tuær.
hina er fremster stodu.
44. Huern sem kappa kletti hann.
kylfu hoggi einv.
beiddi eingi bragnna þann.
at binda vm sina skeinu.
45. Horuar undan haluren þa.
honum matti ei granda.
j millum tueggia mura sa.
mattuligt at standa.
46. Þar ma ganga einn ueg at.
ei þarf slikt at leingia.
c. v. j. hafum stad.
Hognni felldi dreingia.
47. Þraen at Ho(gna) þegar suo reidur.
þa nam fyst at ganga.
spioti lagdi malma meidur.
mitt á halnum stranga.
48. Kuflin skarzt en skyrtan helldur.
skeindiz jarlls(on) eigi.
þess mun garpurenn grimdar suelldur.
gialda ritar sueige.
49. Hogni stock ur hlidenu þa.
hartt sem kolfi skioti.
Þraenn uist ei uid þui sa.
hann uarazt med ongu hote.
50. Þad kom hogg er þotti undur.
Þraens aa buken sterka.
briost og hryggur brotnnar sundur.
bein tok oll at lerka.
51. Þraen er daudur en þotti Liot.
þeyu gaman at sliku.
hoskan soktu hiorfa briot.
hlyrar tueir at liku.
52. Sterkum leidiz stala briot.
at standa j þessu sundi.
stælltum broddi lagdi aa Liot.
sem litit uinna mvndi.
53. Fleinnenn kom fyrer blamannz briost.
bryniu sundrar alla.
ramliga giorer med reidi og þiost.
reckur aa skapt at falla.
54. So uar lagit af horku hartt.
hofud kom nidur aa Liote.
briosti mætti broduren snartt.
beint med ongu hote.
55. Hogni talar med hreysti brogd.
huer gat fyre at lita.
uirda nockur uerri flogd.
uoppn mega eingin a bita.
56. Hogg þad annad Hog(ni) gaf.
hinn þurfte ecki fleire.
sextan gaddar suku j kaf.
su uar skeinan meire.
57. Andri sier at laufa lundur.
lytur at þessu uerki.
hartt nam reida heliar tundur.
hringa briotur enn sterki.
58. Jarllenn Hogn<a> vm herdar þuertt.
hio med ollu aflli.
stod j skyrttu stalit bertt.
stundum kom hun at gagne.
59. Þad uar mattar meizla slag.
mikit og þungt at bida.
Hog(ni) fiell med hreysti plag.
hartt aa uollen uida.
60. Dundi af mune dreyren raudur.
duger ei huildar beida.
An(dri) hugdizt eigi traudur.
annad hogg at greida.
61. Allt uar senn j einum ryck.
upp nam Hog(ni) at spretta.
jarlli gaf suo þungan þyck.
þegar nam hogg at detta.
62. Hog(ni) slær aa hægra armm.
halur nam orku niota.
allan giordi agxlar karm.
An(dra) nidur at briota.
63. Brandurenn fiell og song j hatt.
þegar ur jarllsens hendi.
A(ndri) snyre þa undan bratt.
ofan til skeida uendi.
64. Epter sæker Ho(gni) hartt.
hann uill uega til landa.
A(ndri) stock fyrer bergit bratt.
og brast honum ei at standa.
65. Þar uar under urd suo breid.
oll med huossum steinum.
An(dri) hlip aa laxa leid.
og legz at skerium einum.
66. Þetta berg var þritugt nidur.
og þeyi ongu minna.
H(ogni) staldrar huergi uidur.
þui hann vill jarllenn finna.
67. Kialar og Frosti klædi bla.
kappan under hallda.
þar skal Ho(gni) hlavpa aa.
þeir hugduzt recknvm uallda.
68. Þuertt hliop fram af þusa hall.
þeingilss(on) med æde.
duergar bader feingu fall.
fast ste Ho(gni) aa klædi.
69. Hliop aa kaf med hreyste grein.
hartt at skerenu vend<i>.
A(ndri) þreif upp storan steinn.
med styrkre sinne hende.
70. Sier þa jarll at Sudrar tueir.
sier til beggia handa.
dvergar woru dockuer þeir.
diarft aa skerinv standa.
71. Sudrar hristu sueipur tuær.
saurgar badar woru.
þar kom driukt af dismme nær.
dupt med myrkri storru.
72. Þui uar likt sem saur edur sindur
suide um odda huessi.
jarll uar badum augum blindur.
beint af kyngi þesse.
73. S<t>eypaz fra eg þa skerenv af.
skelmer þungra branda.
An(dri) þoldi alllangt kaf.
unzt hann kom til landa.
74. Hog(ni) legzt til landz jstad.
og litur jarllen sterka.
grimliga hleypur hann garppnum at.
giarn til stora uerka.
75. Reckurenn færdi ruddu áá lopt.
og Rekur j breidan skalla.
su hefur pinda seggi opt.
sa þa A(ndri) uarlla.
76. Þa geck sundur en hali haus.
harder jaxlaR stukku.
A(ndri) uard fra life laus.
en. lioser gaddar sucku.
77. Huert hans bein fra eg bragnnings kund.
braut med hordu stali.
bidur þa duerga darra þund.
draga hann fram at bali.
78. Stirdur og modur er stala tyr.
sterkur epter uinnu.
hvergi minkazt halnvm skyr.
heipt j brioste grimu.
79. Hingad ber eg kuad Hognni þáá .
hilmes dottur suinna.
brudguma sinum brenne hun hia.
brædra hefne eg minna.
80. Nordre kuad þad nidings uerk.
naunnu hrings at gran<d>a.
hier mun uidris ueigen sterk
uerda fyst at standa.
6. ríma
1. BYR mier enn j greina grund.
at giora suo liosan vidris fund.
alz er skyruz skarlazt hrund.
skemta bad mig eina stund.
2. Hogni ueik til hallar aptur.
hreyfdi blodi fenris kiaptur.
þar uar ollum otte skaptur.
ytum fylgdi litel kraptur.
3. Sikling hefur og sueitenn oll.
sied áá sterka branda goll.
budlung uisse brædra foll.
bratt leit Hog(ni) menia þoll.
4. Hliop at sæte haluren hartt.
hondum þrifur sprundir biart.
dottur kongs med dygdar skart.
dreinguren ber af ranne snartt.
5. Suanh(uit) bidur at sueiten frid.
sitie nv kyr áá þessari tid.
eigi mvn kuad audarhlid.
aukazt mier uid þetta strid.
6. Gydu skal nockut greina af.
hvn græder Herra(ud) natt og dag.
sætan talar med sæmdar plag.
Suan(huit) fær nv heliar slag.
7. Kenne eg Ho(gna) hlyra þin.
hefnt hefur allra brædra sin.
uæna tru eg uella lin.
uill nv drepa at ætlan min.
8. Hera(ud) suaradi hringa grund.
hvers mvn reckuren kunna sprvnd.
eg skal frelsa fallda hrvnd.
eda fangadauda j samri stund.
9. Herra(ud) stigur huilv fra.
honum fann eingen sarleik aa.
Hognna sueip og bryniv bla.
budlungss(on) uill skrydazt þa.
10. Rener fram áá græna grund.
greidliga nade hann þeirra fund.
Ho(gni) kenner hiorfa þund.
hans tok þegar at glediaz lund.
11. Herraud kallar harre raust.
Ho(gni) lattu uifit laust.
bauluad se þitt blidu naust.
ef brena uilltu uifit travst.
12. Mier gaf dotter lo<f>dungs lif.
liufare uæri fleina drif.
broder minn ef brenner uif.
vid bregdum helldur aa snarpligt kif.
13. Hog(ni) suaradi halnum þa.
hefdi eg ætllad menia na.
brudguma sinum brenna hia.
brædur teygdi hun heliar aa.
14. Herraud ste fyrer Ho(gna) fram.
hann lezt buen j randa glamm.
fyr en þetta uiner uamm.
verda mun þa fleire skamm.
15. Kenna mun eg þier kænnra rad.
ef kappen gæti uizku gad.
suo megi þin fremd og fræ<g>dar dad.
fara áá huertt hid bygda lad.
16. Kongen mattu kuga so.
kosti lattu hann eiga tuo.
lat þier herskip .xu fa.
eda fylker bidi heliar þra.
17. Helga nefne eg hilmis kund.
huergi spyr eg um sia ne grund.
uaskare nockurnn uella lund
uekia strid uid hiorfa fund.
18. Sterkan finn <þu> stillis nid.
og strid uid hann med jafn martt lid.
hier ma frægden uaxa uid.
en uænu gef þu sprundi grid.
19. Lit nv aa med uizku uel.
verptu j burttu gridar þiel.
þetta rad eg recknnum tel.
reidi og alla heimsku fel.
20. Hogni gaf þa suoren af ser.
satt er mal þad halurenn tier.
garpurenn ma eg ei granda þier.
get at heillt uiler rada mier.
21. Hog(ni) let þa hringþoll nidur.
Herra(ud) tok þa sprunde uidur.
bal er entt en frosta er fridur.
ferdar leyfis huor sier bidur.
22. Blidliga ueiter brognnum þad.
burttu nauckuen huarf j stad.
Herra(ud) uikur Ho(gna) at.
hier skal bida er garpurin kvad.
23. Dreingurenn geingur og dreglla þoll.
doglings jnn j uæna holl.
garpar lita gullaz þoll.
gladdizt kongur og hirden aull.
24. Hilmer kenndi Herau(d) þa.
heilsar þegar med uirding aa.
megtug taladi menia na.
mig hefur leysta kappen sa.
25. Hilmer biod þu brædrum blitt
Hog(ni) frelsti rikit þitt.
uænligt gull og uinit huitt.
verdur hans ella lyndit stritt.
26. Stiller hefur þad stolltar uerk.
storliga unit kuad brudurenn merk.
aa medan at heil er holda kuerk.
han<s> mun uppi frægden sterk.
27. Þeingill suaradi þorna lad.
þin skal hafa med ollu rad.
madur uann þessa mesta dad.
ma honum þacka frelsi og nad.
28. Sikling geck ur sinne holl.
siola fylger hirden oll.
Hog(ni) stendur aa uidum uoll.
ueik til skemmu menia þoll.
29. Kongurenn heilsar Hog(na) aa.
og hirden oll sem blidaz ma.
Recken lofa j rædu þa.
Raunar litt sier kapen bra.
30. Hilmer talar og Hog(na) bydur.
huerskyns ualld sem gull og lydur.
uist skulu þier kuad uiser þydur.
uaskare eingi fleina rydur.
31. Illre hefur þu An(dra) drott.
eytt og drepit aa þessare nott.
huatliga uar til hefnda sott.
Hog(ni) seg þin uilian skiott.
32. Hog(ni) ansar hilmer nv
ecki sein er bednen sv.
fa mier herskip .xv. þu.
fagurliga þau j hernad bv.
33. Leyne eg ecki lofdung þig.
lyster Helga ar finna mig.
han<s> er fremden fræilig.
fylkess(on) ma reyna sig.
34. Hera(ud) suaradi hilme þa.
Hog(na) lat sinn uiliann fa.
þott þeir beriezt sem bragnnar sia.
bada sætti eg kappa þa.
35. Kongurenn þa med kærleiks snilld.
kappa jatar sina uilld.
uar þar sidan ueizlan gilld.
uirdum skeinker brvdurinn milld.
36. Sier hid næsta setti þann.
siklings nid er jarllen uann.
ferden ongvan frægre mann.
finna seigizt aa jordu en han.
37. Heraud uill til huilu ga
halurenn stirdur j sarvm láá .
Suan(huit) kom honum siallldan fra.
sizt uar Ho(gna) um brudi sia.
38. Fimtan herskip fylker bratt.
frackta let aa margan hatt.
Ho(gni) ualdi herlid knatt.
holdum byti hann uarlla smatt.
39. Aunguan þan sem born edur bu.
brudi atti at festa tru.
uilldi sætan fiolnes fru.
fylgia lata Hog(na) nu.
40. Hundrut fimm med herlid snartt.
Ho(gni) byr med stalit biartt.
huorki gadi um aud ne artt.
þetta folk uar yfrit hartt.
41. Dreingurin steyrdi drekanum þeim.
er dyrstan sav menn ut j heim.
liosvm Andra j laufa sueim.
logadi gull fyrer stofnum tueim.
42. Manudur leid fra malma fund.
morgens eina fagra stund.
segger litu aa sildar grund.
siglla margan streingia hvnd.
43. Fim tiger skipa med fræda stord.
fliotliga koma med Þiassa mord.
skilder þocktu áá bædi bord.
bragnningss(on) leit hringa skord.
44. Vif er komen enn uaski her.
veit eg ei hve rikit fer.
harlla martt til handa ber.
holda lid j landi þuer.
45. Berum oss uel kuad brudurenn teit.
bragna styrer þessare sueit.
Hiarandi sem huer mann ueit.
hann fer brædra j epter leit.
46. Fyst mun Ho(gni) hitta þa.
halurenn mvn nv skeidum hia.
seguren honum nv segia ma
af sinum uerkum allt j fra.
47. Biodum sidan seggnum heim.
og siaum nv til huad geingur þeim.
Hiaranda [...] med hranar eimm.
og hofum so nad af fedgum tueim.
48. Ho(gni) gat nv sikling sia.
sannliga kenndi hann recka þa.
Froda sueip og branden bla.
bragnar taki nu huer sem ma.
49. Þesser menn hafa þrifligt lid.
þegar at sneckiur legia af skrid.
freistum huerssu þeir uerda vid.
uirdar ef þier riufit grid.
50. Elfar grimar aller senn.
Andra hugdu skipunum enn.
rada fyrer en rausnar menn.
rioda bivguzt ylgiar tenn
51. Jarllen taladi uirda uid.
ueitum Reckum onguan frid.
þo er mier grunur at þetta lid.
þeyi hafe nu Andra sid.
52. Þegar at her kom hof<n>um at.
Hog(ni) geck ur leyndum stad.
hoggua og leggia holda bad.
herin geystiz romu at.
53. Kylfan syndi hoflgum haf.
Hog(ni) reiddi magne af.
sterklig hogg med stale gaf.
steyptuz fiorar skeidur j kaf.
54. Hiarandi nam Ho(gna) aa.
hatt og sniallt at kalla þa.
aller skulu uær undan gaa.
ecki sliku at standazt ma.
55. Auflgan kenne eg arfa minn.
jnn oss Hog(ni) af ferdum þin.
huergi minkaz heimsku slin.
heilar uilltu auka pin.
56. Hog(ni) kallar hare raust.
Hiarandi med raden traust.
storliga þycki mier standa laust.
stiller rennur og hirden hraust.
57. Þu namt raupa j þinne holl.
og þottezt kunna radenn oll.
jafn vel menn sem mattug traull.
þu munder uinna j randa goll.
58. Ek kann huorke kukl ne slægd.
kappsens hofdum ærna nægd.
þo uard An(dra) jllskan lægd.
alla drap eg han<s> sueit med frægd.
59. Kongen Loga eg kugad gat.
kann eg ecki at sinna um þat.
lat nu fader minn landi at.
og leggium nidur þetta hrat.
60. Fundunz bratt en drecki uar kyr
blider frændur en lægdizt styr.
oll tidendin jarllen spyr.
jnneliga þau giorduz fyr.
61. Hirden ueitti Ho(gna) þa.
heidur og lof sem greinaz ma.
fedgar uilia froned aa.
fyrer uar kongurin staddur þa.
62. Logi baud jarlle aud med nad.
liosrar eru þad jungfru rad.
uirdar settu aa uises lad.
ueitti kongur med list og dad.
63. Ræser giordi rasar la.
recka sueitum skemtan fa.
Ho(gna) frægd og hoggum fra.
huer nam odrum segia fra.
64. Herra(ud) leiddi en huita fru.
Hiaranda til fundar nu.
mæltte jarll uid motra bru.
mær finzt eingi dyggre en þu.
65. Þar ma lita fagna fund.
fedgar tala med jarllsens kund.
uilltu þessa hringa hrund.
Ho(gni) festa j samre stund.
66. Hogni suaradi seggivm reidur.
suo er mier þesse ristell leidur.
ætlla eg huorki happ ne heidur.
henne giora kuad stala meidur.
67. Jarllen suarade seggnum nu.
siazt mun alldri dyrre fru.
en gaufga sidar gullaz bru.
giarna uillder eiga þu.
68. Weizlan leid en uogar eim.
ueitti konguren fedgum þeim.
Hiarandi þa silfur og seim.
sigller suo til landa heim.
69. Heravd fylger Ho(gni) þa.
hilme toku þeir orlof fra.
settu dreinger segl uid Ra.
sidan hieldu græden aa.
70. Hefring syndiz gleypa greR.
græna jord en steypaz sker.
biblenda mun byrgiazt hier.
breytazt nu sem uonligt er.
71. So er hit ramma raddar setur.
recknum stirtt so uarlla getur.
Aundrvr fleire ortt j uetur.
annann tru eg nenne betur.
7. ríma
1. ÆTLA eg od þann adur stod.
ytum birtt at sinne.
horna flod mun herlig þiod.
hallda gims j minne.
2. Skina nær sem skyrum uær
skærtt j midiu austri.
stiornur tuær mig sturlla þær.
stridz j greina flaustri.
3. Mansaungs hliod. um mecktug fliod.
m[iu]kliga skylldi kenna.
seger opt þiod at sorgar mod
sialfer kueiki þenna.
4. Er þa ver at bædi ber.
briost og spottit langa.
lati huer þann hrygen sker.
hult fyrer odrum ganga.
5. Huad eg fann edur. hallda kann.
hugar j briosti minu.
eingen mann skal yndis bann.
aa mier sia edur pinu.
6. Huad skal sa er huorke ma.
hiartans frygd ne yndi.
gullaz na at greina fra.
giorezt þeim daufligt lyndi.
7. Wake eg þratt um uintRar natt.
uida hugur kann skeika.
hefi eg att vid hugarens matt,
hægri fyrri at leika.
8. Skemtan min vm uidris uin.
uil eg þeigia leingi.
bodnar rin fyrer bauga lin.
birtum uorrv meingi.
9. Fetbreids drott j fyrri nott
Fiolnes bior nam huerfa.
hefe eg þau sott at sueiten fliott.
suptungs bior megi skerfa.
10. Brædur tueir fyrer bauga eiR.
brognum frelse at ueita.
fysast þeir med foluan geir.
fylkers arfa at leita.
11. Hogna skeid aa humra leid.
hiellt j stormme stridum.
kolgan breid en kioluren sneid.
klaufzt fyrer stafni fridum.
12. Dravfnnen ha. sem dufan bla.
dreckans um hlyrit biarta.
hraunnen láá. þar er glygit gra.
glepte unnur enn suarta.
13. Skalf þa streingur. en reyndu reingur.
Reidan kappar herda.
þo mvn feingur ef þannueg geingur.
þegnna meire uerda.
14. Atta dægur olldu sægur.
aurliga þotti sueima.
byren frægur blidur og hægur.
bar þa austur j heima.
15. Morgun stund a hufa hund.
herenn lita nade.
fagra grund en frænings sund.
ferden tok med rade.
16. Hog(ni) spyr ef. Herra(ud) fyr.
hefdi spurnn af lande.
ei skal kyr enn heite hyr.
og hoggum stortt med brande.
17. Hiorfa þey. bad hringa frey.
hernad au<n>guan stefna.
þetta er ey. en Þund<ar> mey.
Þrudheim mattu nefna.
18. Herann sa sem haudret aa.
heiter Alfur en rike.
ôdgara ma nu onguan fa.
oglis mann af sike.
19. Frodur er hann. og fulluel kann.
fornaR listir skilia.
eingen mann ma odling þann.
ordz ne verka dylia.
20. Bragna ual hier bida skal.
bader take nu gaungu.
finnum hal og favm hans tal.
og forum med drambi ôngu.
21. Brædur þa med frægdum fa.
fridan kastala lita.
raudar ma þar suipter sia.
ok siofar skaflen hvita.
22. Heimligt portt med heidre gortt.
hrauster bragnar finna.
þar er oskortt med herlid fortt.
og hulit med skiolldu stinna.
23. Orlof þa sem ytar fa.
jnn j kastalan uikia.
hlyrar na til hallar ga.
og hitta Alf enn rika.
24. Kuedia þann enn kuintta mann.
kappar tueir at bragdi.
j mote uann at heilsa hann.
hlyrum þann ueg sagdi.
25. Harlla stritt mun Ho(gni) þitt.
hiartad grimdar kenna.
haudret fritt. og herlid mitt
j heitum loga uill brena.
26. Fader þinn uann. ok fulluel kann.
flædar ueita brima.
frægri mann ei feck en hann.
uid fylgdunz langa tima.
27. Algortt fron þar er æfi tion.
er. Andra letud pina.
eingi er uon at uidris kuon.
þu uiner þann ueg mina.
28. Þegar at sier at þioden tier.
þin j fride at standa.
byd eg þier med blidu af mier.
biartan frænings granda.
29. Winit huitt og uelldit fritt.
vera skal allt til reida.
haudret blitt og herlid mitt.
og huers sem þier uilit beida.
30. Garpar sa at gladdizt þa.
grettir bedia skerder.
sier bad tia ef seggurenn ma.
satt um Helga ferder.
31. Suaradi hradur en rike madur.
reck ma eg þetta veita.
sa er einn stadur af seimi er gladur.
segiz er Noatun heita.
32. Tartaria nam tigge sa.
traustliga allri styra.
Ballduin ma. þann bragnar þa.
budlung nefna enn dyra.
33. Fylker ath þar frone sat
festi drottning blida.
sikling gat uær saunnum þat.
suein og dottur frida.
34. Audlings kund. vid itra lund.
ytar Menelas nefna.
marga stund. uid fleina fund.
fylkers arfa at stefnna.
35. Bragnnings iod hit fegursta fliod.
fyrdar Elenam kalla
uekur su mod j minnes slod.
meidum ofnis ualla.
36. Helgi bad. þit heyrit þad.
hilldar fræni<n>gs heida.
Menelas kuad þeim makligt þad.
mala stefnu at eiga.
37. Weittu þeir fyrer avdar eir.
odda leik af stundu.
bragnar tueir med biartan geir.
bader Noatun fundu.
38. Tartara her er taldar huer.
tueir um Hel(ga) dreinge.
se eg hue fer at ueiter uer.
uænu Menelas meing[i].
39. Helge aa sem heyraz ma
Handings uod suo frida.
ei kann fa þann branden bla.
hans bryniu og hialm megi snida.
40. Ramman brand uid reikar land
roskua uinur serki.
bryniu grand j biartri hand.
bar þann Ennias sterki.
41. Yggiar brik er elldi lik
alldri skarzt fyrer brandi.
hetian rik finz huergi slik.
huorki aa sio ne landi.
42. Tartara her þar Hel(gi) fer.
hnigur at grænum uollum.
þioden suer at þesse ber.
þeingilss(on)ur af ollum.
43. Þess er gad. fra gull hrings lad.
giorer hann ongu at eira.
hefi eg nu tiad um Helga Rad.
edr huers uilit fretta fleira.
44. Hog(na) brann um hyggiu Rann.
heipt og mællti þetta.
listar mann þu leyfer hann.
lif og nad skal eg fletta.
45. Gef til rad at gæti eg nad
garpen pruda at finna.
aa fridre lad med fremd og dad.
feinga eg hann at uinna.
46. Undra litt tru eg ofozz þitt.
Alfur talar uit seggi.
hiartat stRitt og herlid fritt.
He(lga) at uelli leggi.
47. Þad skal tia. at þier uileg fa.
m. nytra garpa.
skryd eg þa med branden bla.
og Boluerks elldenn snarpa.
48. Hreysti mann skal eg þegnum þann.
þessu lata styra.
Hernit kann at kalla hann
kappa sueiten dyra.
49. Hringa gaut. uil eg hallar skraut.
hars og frone byta.
hallt suo braut. aa humra laut.
halur med dreingi nyta.
50. Morgen tid mun ferden frid.
flædar essum renna.
kuelldi sid mun sueiten blid
segger Noatun kenna.
51. Hel(ga) lid mun hægan frid.
hafa aa þessari stundu.
Menelas uid. en garpar grid.
grimur þrenar bundu.
52. Hartt sem ma skal Hog(ni) þa.
Hel(ga) en pruda finna.
holmen áá biod halnum þa.
at hoggua skiolldu stinna.
53. Aungvan bug vid branda flug.
budlungss(on) mun syna.
sa þarf dug og dreingmannz hug.
ef dreing skal lifi tyna.
54. Marga und aa malma fund.
mæker tru eg at uinne.
yckarn fund um alla stund.
ytar leggi j minne.
55. Hlyri þinn med stalen stinn.
stride aa Menilas lydi.
hugur er minn at halur vm sinn.
hlioti sigur og prydi.
56. Helga þiod med heiptar mod.
Herrau(d) fylgia uilia.
herrans stod suo forsôgnn frod.
fyrdar nadu at skilia.
57. BrædRum tueim. let baru eim.
bioda Alfur enn Rike.
fylker þeim aa fiska geim.
fannzt hans uarlla like.
58. Mælte nu med trausta tru.
tyner gullzens brenda.
hier munttu vid hrumnes bru.
Herr(aud) aptur uenda.
59. Byren sa skal blasa aa
sem bragnar kiosa uilia.
skatnar þa til skeidar ga.
skiott uid heran skilia.
60. Leid so hatt. at lyste bratt.
leiptur um alla heima.
Hernit bratt og herlid katt.
hiellt aa salltan geima.
61. Andra naut med æret skraut.
ut sa herenn skrida.
ualla þraut um uandils laut
uind um oska frida.
62. Skina oll sazt skeliungs uoll.
skærtt sa flote en dyre.
hranna foll. eru huit sem mioll.
hefring lek uid styri.
63. Segllit huertt ur heflum hertt.
hiellt hin sterka lina.
æ sazt bertt. um bardit þuertt.
blodug haddan gina.
64. Hernit þa sem herme eg fra.
holdum leider sagde.
kyrdi laa. en lydurenn sa.
land at skomu bra<g>di.
65. Bræddan stafn áá breida hafn.
bragnar letu renna.
auldu hrafnn ma orda safn
auka bærling þenna.
8. ríma
1. VEITTe eg fyrri uerknad minn.
uif at bedne þinne.
en skal drott j annad sinn.
ytar leggi j minne.
2. Hog(na) fra eg aa hafnar þær
og herenn logdu teiter.
sem sa stendur en sterki bær.
stadur er Noatun heiter.
3. Segger fella seglen þun.
saudungs prydd med ordi.
flein uar skotit j fagran grunn.
og felldu streing af bordi.
4. Hog(ni) lætur hufa grand.
hreinv pelli tiallda.
fannzt þa eingi fyrda hand.
fegra skrauti uallda.
5. Þegar at leiptur aa langan vid.
leider geisla biarta.
H(ogni) geck aa land med lid.
lek honum grimd j hiarta.
6. Stolltar fra eg at stadnum nær.
stodu Hel(ga) buder.
uaktarar marger woru um þær.
og uirdar harlla pruder.
7. Huattliga bidur þa hrausta þiod.
Hog(ni) stodvaz alla.
medan hann geingur randa riod.
Rikan vid at spialla.
8. Bader fylgduz barmar tueir.
bilar þa ecki hiarta.
Hernit spenner huassan geir.
og hulen med stalit biarta.
9. Ganga þeir j glæsta bud
garpar treysta afle.
Hel(ga) drack þar hirden prud.
en hann lek sialfur at tafli.
10. Segger ga fyrer sikling þann.
sæmdar ordum gledia.
uarlla sau þeir uænne mann.
uarg aa tafnne sedia.
11. Þegar at Helgi Hog(na) sa
honum stod upp aa moti.
baud med heidre hrumþueings la.
hulda hvitings grioti.
12. Hirdig ecki um hilmis bod.
Hog(ni) talar af modi.
bu þig fliott j fleina rod.
og fyllum uarg aa blodi.
13. Helldur uil eg kuad Helgi af mer.
en hoggum uid þig skipta.
fodur leifd mina frelsa þier.
og fruna Suanhvit gipta.
14. Fyrer suo litlu frettig nu.
frægd til yduar sanna.
fiora jarlla fellder þu.
og fim þusundrut manna.
15. Virdit ei til ergi mier.
eyder frænins heida.
brædra lag vil eg bioda þier.
bragnna fiold og skeida.
16. Hog(ni) bidur ei þrifaz þann.
er þiggur hann kosti neina.
þitt skal hoguit heila rann.
ef hamingian uill ei meina.
17. Hareks fall er minugt mier.
ma eg þad Suan(huit) kenna
þad skal eg Hel(gi) hefna aa þier.
hana matti eg ei brenna.
18. Þigg eg huorki lyd ne land.
ne lauka gefnne biarta.
verttu buen at briota rand.
ef bilar þig ecki hiarta.
19. Helgi talar med hofi en.
heimskan ma þar kenna.
eg ueit þa ongua veralldar menn.
at uili eg vndan rena.
20. Þier mvn eg Hogni holmi aa.
harlla standa næri.
kappen legg þu af kylfu þa.
uær kollum jotnna færi.
21. Wekium med brandi fleina foss.
kuad fleyger naudru grunda.
vil eg ei lata lurkum oss.
lemia j hel sem hunda.
22. Mætunzt tueir at morne dags.
meider Fofnes sloda.
megum þa huassann hræfar lagx.
j heitum dreyra rioda.
23. Holmgangan uar holdum ny.
hreinni sett aa grundu.
þetta spyrzt um borg og by.
bratt j samre stundu.
24. Agnar nefne eg audar niord.
æ geck Helga hit næsta.
sa uar fæddur áá suenskre jord.
sundrar hialmma og glæsta.
25. Han uar sterkur ok geyse gilldur.
godar gerdar atti.
þannueg taladi þegnnen milldur.
suo þioden heyra matti.
26. Þad er mier strid at stan<d>a hia.
ef stækaz fleina funder.
eg ma þad ecki j sesse sia
at suide Helga under.
27. Helldur uil eg uid Ho(gna) brædur.
hreysti fremia <mina>.
Hernit suaradi holdum skædur.
heyri eg folskv þina.
28. Wid skulum .ij. aa grænne grund.
gugnnis drifu heyia.
mun eg þad ueita uella lund.
ef uilltu aa morgun deyia.
29. Hera(ud) seger at hann skal uid.
hillde uekia strida.
Tar<t>ara kongs en trausta nid.
adur tvær vnzt nætur lida.
30. Innt er Hogna erindi þa.
ytar burttv ganga.
skiotliga vill til skeida ga.
skatna sueiten stranga.
31. Hera(ud) sendi Menilas menn.
milldingss(yn)i at bioda.
fyrda rædu fretti en.
og fiolnnes elld at rioda.
32. Kongss(yn)i þotti kynia hatt.
kappa ofsin geisa.
þo lezt hardan hiorfa þatt.
huergi bila at reisa.
33. Þegar at mornne stiornan staR.
stale klæ<d>izt meingi.
Hog(ni) fystur aa holmen gar.
huatar med sina dreingi.
34. Hel(ga) sazt hin fræga ferd.
foldar sueipe oma.
skatnar barv skiolld og suerd.
skreytter oglis lioma.
35. Tartarar fylkia aa græne grund.
gall j horni tomu.
lands menn selldu laufa fund.
letiazt alldri j romu.
36. Þeim skal greina fyrðum fra.
er fyster sætter riufa.
Hernit skoradi Agnar aa
Odins reflla at klivfa.
37. Reckar geingu aa ravdan felld.
rander toku at knyia.
hiortun giorduzt heiptar suelld.
hoggua er skamt at fryia.
38. Gullu ritur en sungu suerd.
sokti ornn at hilldi.
opt a lopt kom eggen herd.
oddurinn brast j skilldi.
39. Dreinger leingi dara fund.
diarflig<a> soktu þenna.
agadi blod ur breidre und.
bader sarra kenna.
40. Garpar magna hrotta hregg.
hrumnings þil<i>ur stuku.
skyfdi rond en skygda egg.
skilfings felldar hrucku.
41. Agnar hio med afle suo.
ofan j hialmen frida.
hallar blom j hlutena tuo.
hann nam sundur snida.
42. Hernitz sundur hringan brast.
hrumnings prydd med pelli.
dundi blod ur bennivm fast.
en brandurin stod j velle.
43. Hern(it) skaut ser skilldi fra.
skyrum geck at þegnne.
han hoggur ofan j hialmen bla.
hartt af ollu megni.
44. Hilldi grim og heila rann.
hioren sundur skipti.
briost og hlifar branduren hann.
bradliga sundur skipti.
45. Agnar fiell en þannenn þraut.
þundar jelid stranga.
Hern(it) sazt af holmi j bravt.
harlla bleikur ganga.
46. Hia sinvm monnum setizt nidur.
seima briotur aa grundu.
dreingivm syndiz dara uidur.
davdur j samre stundu.
47. Ferdin litur aa fiska leid
flivga ormma tiggia.
giordi þangat gretter leid.
er gram sa daudan liggia.
48. Hernitz lik j hardar klær.
hann gat at ser spenna.
flaug j burtt en flestum nær
firnna þotte kenna.
49. Þui næst fra <eg> holmen aa.
Hel(ga) ganga enn pruda.
hulen uar allur hilmer sa.
med hreinvm fofnis skruda.
50. Hognni hin sterki honum kom mot.
hoggua er skamtt at bida.
þar uar grimliggt geira hot.
er garpar toku at strida.
51. Bragnar hiugguz brondum titt.
baru grimleik sanan.
hlifar geymdu holldit fritt.
huorgi sparadi anan.
52. Segger þannueg sottuz geyst.
sizt uit romu hlifaz.
sem þau er<u> lionin l<e>yst.
leingi j sundur rifazt.
53. Leidizt huors af liosri aund.
leip<t>urit jordu selldi.
bæsings eggen ber uid raund.
biortum skipter elldi.
54. War suo fimur uid fleina skur.
fylkers arfi enn gilldi.
badum hondum brandi ur.
hann beitti jafnt sem uilldi.
55. Skilldi og suerdi skipti hann opt
skioma briotur med hondum.
hann hof sig jafnan hatt j lopt.
en hioren gall j Rondum.
56. Huertt þad sinn at herenn sa.
Hogna uega med brandi.
reckum þotti radenn þa
ræsess(on) fra landi.
57. So eru Hogna hoggin stor.
Hel(ga) bane þad uæri.
storliga aull nema stala þor.
sterkliga af sier bæri.
58. Hialmm og bryniu He(lga) aa.
huorki bita matti.
meizla þungur er mæker sa.
mætur er jarlls(on) atti.
59. Hringu þa sem Hognni bar.
hrottenn sundrar alla.
suerdit alldri skyrttu skar.
skeindiz hann þui uarlla.
60. Yggiar sueip þann alfuren gaf.
alma riod enum huita.
Helga stock suo hiorenn af.
hann matti ecki bita.
61. Feingu eingin segger sar.
en soktuz þo med ædi.
beiskliga toku uid branda far.
en bada sæker mædi.
62. So tel eg uid fleina fund.
fylkers arfa beriazt.
Ho(gni) þurtti kongsens kund.
kappe ollu ueriazt.
63. Mælte hinn er mestri uelldur.
magt af fleina þingi
uilltu kongs(on) huilazt helldur.
en halur af mædi springe.
64. Let ser Hel(gi) lika um stund.
lata mædi renna.
þeir settuzt nidur aa græna grund.
garpar huildar kenna.
65. Hel(gi) seger at Ho(gni) kann.
at hoggua stortt med brandi.
fann eg onguan frægre mann.
fyr aa sio ne landi.
66. Orku skorter oss uid þig.
erttu troll at mætti
segurenn alldri sigrar mig.
j suerda snorpum þætti.
67. Byd eg en at binda tru.
en bregdum hiorfa galldri.
eignizt skeidur og skornings bru.
og skilium sidan alldri.
68. Ho(gni) seger at mæla ma.
meir se bodit en iafne.
gufgre het eg þui gullazt na.
at giora þig uargs at tafne.
69. Nu þo eingen um haf ne haudur.
Hel(gi) yfer þig uinne.
annar huor skal ockar daudur.
adur en romu linne.
70. Reynizt sizt um randa far.
recka þrutnar ædi.
berum uid eingi af suerdum sar.
en sækunz þo til mædi.
71. Helgi leggium hlifar nidur.
hialmm og bryniu biarta.
ef þier dyrligt dara uidur.
duger til karllmannz hiarta.
72. Kongs(on) suarar af kappe reidur.
og kastar hlifum sinum.
lata munttu lif og heidur.
af liotum ofsa þinum.
73. Skiotliga far þu skyrttu af.
styfer sterkra branda.
fyre þeiri er fader þin gaf.
og fleinar alldre granda.
74. Hlæandi suarade Hog(ni) nu.
hann red sig skyrtu fletta.
vissa eg ei at uærer þu.
viser frodur vm þetta.
75. Huillder reckar hlavpa aa fætur.
huor mot odrum rende.
skein þa bragnna brandurin mætur.
badum þeim j hendi.
76. Su uar hilldur af holdum tueim.
hafen j audru sinne.
uarlla fer so uitt um heim.
at uirdar slika finni.
77. Huorgi sparadi orku af.
æ sem tidazt hoggua.
arnnar bornnum atu gaf.
en under uollu doggua.
78. Wirdar hlifa vætki ser.
og uega med badum hondum
eingen hlifen yta ber.
æ tok holld vid brondum.
79. Þad sa eingi þegnna kind.
þeirra fyrer aa fundi.
huor at segur j suerda uind.
sigurinn uina mvndi.
80. Huorgi gadi um holldit fritt.
halur uid romu snarpa.
laufen sazt aa lopti titt.
en lagadi blod um garpa.
81. Hestar rioda gridar gom.
graer uid blodit heita.
hratt sleit gemler holld ur klom.
en hrafn drack unda sueita.
82. Bader flocktu af sarum sundur.
so nam dagur at lida.
þegnum syndizt þetta vndur.
og þann ueg leingi strida.
83. Fetla sneid hin frane ormur.
fyrda hold og klædi.
ogurligur uar stala stormur.
stundi und af mædi.
84. Huorugan lyste hraustan dreing.
huildar anann bidia.
badum hielt uid hiartans spreing.
j hordu iele þridia.
85. Huergi uard aa hoggum hle.
holda sigrar mædi.
bragnar fiellu áá bædi kne.
og borduzt þo med ædi.
86. Varlla geta þa uasker menn.
ualldit unda naudrum.
klenum brandi kasta senn.
kappen huor at audrum.
87. So kom logx uid fleina fund.
falla bader kenna.
dreingia sen af diupre und.
dreyrra læker renna.
88. Jafnna kalla ollden oll.
afreks garpa slika.
segger ei j heimsens holl.
sied hafa dreing<i> slika.
89. Hog(ni) fiell en hrotta fiuk.
holdar þannueg sefia.
segger giordu hans sara buk.
j silke duk at uefia.
90. Þegar med hreysti Hera(ud) sa.
Hel(ga) áá grundu falla.
raudan skiolld hof reckenn ã.
ræsis kund hin snialla.
91. Daudan sagdi hann dara gaut.
en dreingi lætur bada.
Herra(ud) bera af holme j braut.
hann uard sliku at Rada.
92. Haleysk þiod geck Hel(ga) oll.
Her(rauds) merki under.
fylkia lide aa fagran voll.
enn fast gall ludur um stunder.
93. Budlungs sueiten Bauduars uerk.
biladi ecki at strida.
hier mun durnnis dregginn sterk.
dreings ur minne lida.
9. ríma
1. NYunda sinne ur nausti gangs
naens skal dugga uinna.
hier mvn lilian linna bandz.
liosa skemtan finna.
2. Menilas þiod. um morguns tid.
mæter He(rrauds) seggium.
þar ma lita sterkligt strid.
stefnt af huorum tueggium.
3. Merken blika en mæker saung.
moder garpar hniga.
fenris sokti at fleina þraung.
flygtizt ornn til uiga.
4. Ulfurenn þaut en unden saug.
ylgiar kiapturenn liote.
streingia hagl um hiortun flaug.
hlif uar sliten ã spiote.
5. Hermenn geysa geira regnn.
grimnis jarder stockua.
einn ueg seger at þræll sem þegnn.
þeim uard undan hrockua.
6. Felld uar Herra(uds) fylking oll.
framan at dyrrv merki.
Menilas æsti malma goll.
og meiddi froda serki.
7. Fetla ran en frane uargur.
fyrdar spectar grunder.
Tartara herinn tyndi margur.
tale um þessar stunder.
8. Herraud aa uid hilldar salm.
harlla nog at starfa.
med brandi sneid hann bryniu og hialm.
og bitRan ullar karfa.
9. Herneski fra eg hilldi at.
Helga ens pruda bæri.
nordmenn aller namu þad
at nockvr þuilik væri.
10. Saer einn madur j Menilas þiod.
Marbrin reckar kalla.
þessi let fyrer gilldings glod.
garpa otal falla.
11. Fasta hleypur hann fylking á.
fleyer ofnes stiga.
garpa lét hann þrenna þria.
þegar at uelli hniga.
12. Haleysker fra eg hlyrar tueir
honum j moti rida.
Sigurdr het og Solli þeir.
segger leingi strida.
13. Marbrin hio suo mest uar undur.
ma þad herinn lita.
buken klavf hann Sigurdar sundur.
sodul og hesten huita.
14. Hlyri hans uill hallda fra.
laufa huossu fiuke.
skiotliga feck hann skeinv þa.
skildi hofud fra buki.
15. Marbrin kallar mikilli raust.
vid skulum Her(raud) strida.
giore eg þitt sundra sinnu naust.
ef segurenn þorer bida.
16. Her(raud) su(arar) j samri stund.
segg nam moti uenda.
þu hæl<i>zt ei fyr um hiorfa fund.
en hofum barizt til enda.
17. Þegar j fyrstu Herau(d) hio
hrotten giorde at bita
bryniv og skiolld sem brygdi j sio.
bruna sueipen hu<i>ta.
18. Hofudit sneid af hesti j braut.
hann med benia rodle.
Marbrin þeyi hreysti þravt.
þegnen stock ur sodle.
19. Kappen sinn hin biarta brand.
badum reider hondum.
hann hoggur mitt j hrumnis land.
hatt stock elldur ur rondum.
20. Ecki skipti egginn mio.
odens hallar bloma.
blackinn sundur j bogum hio.
briotur unnar lioma.
21. Herra(ud) stock aa græna grund.
og giorer sinn brand at reida.
alldri hugdi hann laufa lund.
læknning skylldi beida.
22. Dapran þykizt sinn daudan sia.
dreingur er hoggit kenndi.
hann hleypur under Herau(d) þa.
hartt med afli spenti.
23. Marbrins uar suo magnit stritt.
ma þad undur kalla.
Her(raud) hrekzt um uollen uitt.
og uar þa bven at falla.
24. Her(raud) studdi en gaufga gipt.
geck þad epter uonum.
Marbrin fann at fast uar kipt
fotum undan honum.
25. Marbrin fra eg at mællte hatt.
minv treysti eg afli.
garpuren ma þier granda fatt.
giorez nv brogd j tafli.
26. Lifit iungt ef lofar þu mier.
listar madurinn fride
alla stund skal eg þiona þier.
þa med list og prydi.
27. Her(raud) seger at seggurin skal.
sinv life hallda.
upp let standa en sterka hal.
steyper grænra skiallda.
28. Gullu hornn en gerdar skar.
gytings eggen miofa.
ualur la þykt um uollu þar.
uirdar daudan p<ro>fa.
29. Flest oll flyde fyrda kind.
þegar at Marbrin kenndi.
foru bædi aa uog og uind.
uard þeim naud fyrer hendi.
30. Menilas vill og mengit knatt
minzt j flotta kennaz.
hofdingiar<ner> hittaz bratt.
og hartt j mote renazt.
31. Hvorgi spardi af hreysti dreingur.
hardar rander spena.
badar þeirra sterku st<e>ingur.
stucku j hlutenna tuenna.
32. Segger hiugguzt suerdum fast.
sok<t>uzt hartt og leingi.
skofnnungs egg j skilldi brast.
skakar med þeim eingi.
33. Hlifar þær sem kongsens kundur.
klenar seger at bæri.
Her(rauds) sneid þær suerd j sundur.
sem þær rotnar uæri.
34. So kom logx uid suerda far.
sæmdar garpur nam falla.
milldingss(on) uid mædi og sar.
ma hann þo frægan kalla.
35. Seggurenn lætur siklings nid
saran bera til skeida.
flottann reka og gefa þo grid.
gorpum þeim er beida.
36. Gioruoll skipen og gumna halld.
gull og dyrlig klædi.
segguren leggr sier j ualld.
og sigler burtt aa grædi.
37. Eingi kunni annad slikt.
yta herfang skyra.
hof þann næsta heidurinn rikt.
er hafdi sliku at styra.
38. Her(raud) seger at hollda þria.
hann hafi j sinu ualldi.
frægri aunga finna ma.
fyr under skogar tialldi.
39. Rendi skeidur aa ran[ar] uoll.
rauk um stafnen buna.
baru laudur af brimla holl.
biort skinv segl uid huna.
40. Smæckaz unnur en lægdi laa.
lægis hestar renna.
nordmenn mattu Þrudheim þa.
þar fyrer stafne kenna.
41. Dreinger steyptu flein j flod.
fleyenn at hofnnum uenda.
Alfurenn rike áá strondu stod.
er streingia birnner lenda.
42. Herauds meingi fagnar fliott.
fleyer gullsens brenda.
bidur þa halRen hoska drott.
heim j kastalan venda.
43. Hradliga þiggur hirden oll.
hertugans bod med soma.
ecki skorti j iarllsens holl.
allz skyns mekt og bloma.
44. Hernit sa þa hirden rik.
holda gledur med prydi.
undurenn þotte eingen slik.
orden fræknum lydi.
45. Wndrazt þiod at brognum bar.
baru liomann raudan.
hinn sem orpen ondu uar.
og aller hugdu daudan.
46. Herenn allur er hiorfa þund.
heilan mattu kenna.
hier mvn blaens uid bragda grund.
briota karfan þenna.