I. Úr þjóðlagasafni Bjarna Þorsteinssonar (bls. 599). Heimildarmenn: Guðlaugur Jóhannesson (1837–1886) og Guðný Jónasdóttir (1837–1883), bæði úr Eyjafirði.
Drengurinn minn, minn,
mjer lízt á hag þinn,
kondu á kvöldin
klaklaust í tjöldin;
þig kátan þar finn,
þreyttu' ekki hestinn;
annað kvöld mun sveit sinn
segja þig velkominn.
II. Útg. Bjargar Björnsdóttur (1913–1993) frá Lóni í Kelduhverfi:
Drengurinn minn,
mér líst á hag þinn.
Komdu á kvöldin
klaklaust í tjöldin
þig kátan þar finn,
þreyttu' ekki hestinn;
annað kvöld mun sveit sinn
segja þig velkominn.
III. Úr vikivakaritgjörð Ólafs Davíðssonar (bls. 383):
Þorleifur minn, minn,
mér lízt á hag þinn.
Komdu á kvöldin
kátur í fjörðinn.
Þig glaðan þar finn;
þreyttu' ekki klárinn.
Annað kvöld sveit svinn
segir þig minn, minn.
Þorleifur:
Orða jötuns úng Gerður
innan pínir hug minn.
Þundar leikur vífs vindur
varmur upp á frúr arm.
Heitur Gýgjarhúss brjótur,
hana leingi bezt man,
fljóði sjaldan frá líður
fálubyr í neitt mál.
Þolir föður Þórs valur
þeygi nema hjá mey;
geingur sjaldan Gauts blakkur
glaður burt úr þeim stað;
undir Þundar sár svanur
sízt heima kyr víst.
Tíma styttir Týs lómur
tíðum hjá gullshlíð.