Fyrirsögn:
Þú, brúður kristi kær
Lagboði:
Höfundur:
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Þú, brúður Kristi kær,
ó, kom, þín heill er nær.
Þig nálgast góður gestur,
þinn Guð og vinur bestur.
Hósanna, dýrð sé Drottni,
hans dýrðin aldrei þrotni.
2. Frá inni út þér flýt
og elskhuga þinn lít.
Veit lávarð þínum lotning
með lofgjörð, Síons drottning.
Hósanna, dýrð sé Drottni,
hans dýrðin aldrei þrotni.
3. Dreif kvistum konungs leið,
þín klæði' á veginn breið,
í höndum haf þú pálma,
syng hátíðlega sálma.
Hósanna, dýrð sé Drottni,
hans dýrðin aldrei þrotni.
4. Hann líka láttu þá
þín lofa börnin smá.
Með helgum svari hljómi
öll hjörð Guðs einum rómi:
Hósanna, dýrð sé Drottni,
hans dýrðin aldrei þrotni.