Á fæðingarhátíð lausnarans er jólasálmur úr Grallaranum (Graduale) sem gefin var út á Hólum árið 1594.
Fyrirsögn:
Á fæðingarhátíð lausnarans
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Frelsarinn er oss fæddur nú,
hans fróm móðir var jómfrú.
Af manns völdum ei vissi sú:
í heim til vor
af himnum fór
sú heillin stór.
2. Með oss er guð Immanúel,
orð þau boðuðu Gabríel;
um það vitnar Esekíel.
Guðs föður son,
gjöf lífs og von,
vor gerðist þjón.
3. Orð Davíðs vel uppfyllast hér,
og hvað skrifa spámennirnir:
Kristur sá engla kóngur er,
hvern fjármenn sjá,
í jötu lá
ein manneskjá.
4. Herrann ofan af himnum sté,
herjaði eftir mannkyni,
því vill hann kvitt af syndum sé
sál hvers eins manns
og hólpin til sanns
með miskunn hans.
5. Föllum nú til fóta Krists,
sem fæddist oss til lausnar víst,
fékk oss af himnum frið og vist.
Syngi hans hjörð
honum lof og dýrð
og þakkargjörð.