Fyrirsögn:
Nú kemur heimsins hjálparráð
Lagboði:
Höfundur:
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Nú kemur heimsins hjálparráð,
helgasta líf í duftið sáð.
Soninn Guðs eina, sannan mann,
sælust María fæða vann.
2. Ljómar nú jata lausnarans,
ljósið gefur oss nóttin hans.
Ekkert myrkur það kefja kann,
kristin trú býr við ljóma þann.
3. Hæstum föður á himni´ og jörð
heiður, lof, dýrð og þakkargjörð,
syni og anda öld af öld
eilíf sé vegsemd þúsundföld.