Sálmurinn Nú eru byrjuð blessuð jól eftir Helga Hálfdanarson (f. 1826. d. 1894) var alltaf sunginn á aðfangadagskvöld jóla í Hælavík á Hornströndum. Sálmurinn er þýðing úr sálmi eftir Hans Adolf Brorson (f. 1694. d. 1764). Sá var danskur.
Fyrirsögn:
Nú eru byrjuð blessuð jól
Lagboði:
Gamalt íslenskt sálmalag. Sjá: https://ismus.is/bragi/erindi/5320
Höfundur:
Helgi Hálfdanarson (f. 1826. d. 1894).
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Nú eru byrjuð blessuð jól,
nú breiðir geisla skæra
um grátheim lífs og líknarsól
oss líf og náð að færa;
nú föllnu kyni fagna ber,
því fædd á jörðu gleðin er;
nú þraut of þung er engin;
nú heyrist boðað himni frá:
Guð hefir þóknun mönnum á,
hans ást er aftur fengin!
2. Í heiminn kom sem ungbarn eitt
hinn æðsti guð af hæðum,
að sekum fengi frelsi veitt
og fulla nægð af gæðum.
Sú hugsun þungbær honum var,
og hjartað sárt hið besta skar,
að guðsmynd göfug týndist;
af kærleik heitum himni frá
kom hann því jörðu sjálfur á,
að fyrir fallna píndist.
(Sálmurinn er í heildina 7. erindi)