Fyrirsögn:
Jólasveinar einn og átta
Lagboði:
Tvö íslensk þjóðlög og eitt erlent. Sjá einnig lagið við Tunglið má ekki taka hann Óla
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Jólasveinar einn og átta
ofan koma af fjöllunum
í fyrrakvöld þeir fóru að hátta
fundu hann Jón á Völlunum.
Andrés stóð þar utan gátta,
það átti að færa hann tröllunum.
Þá var hringt í Hólakirkju
öllum jólabjöllunum.
Jólasveinar fimm og fjórir
Finnmörk komu norðan af.
Kloflangir og kynja stórir,
komnir norðan reginhaf.
Best hver þessi bófinn tórir
barna ljótt ef heyrir skraf.
Jólasveinar tólf og tíu
tóku af rása fjöllunum.
Þeir bundu hendur Björns að nýju
og börðu hann með sköllunum.
Nær hann aldrei frelsi fríu
fyrst um sinn hjá tröllunum.