Drengurinn drjólinn er hálfgerð jólaþula sem vinsæl var um allt land áður fyrr.
Fyrirsögn:
Drengurinn drjólinn
Lagboði:
Íslensk þululög. Sjá:
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðvísa
Kvæðagrein:
Þulur; Jólin; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Drengurinn drjólinn,
hvar varstu um jólin?
Ég var suður á Helgafelli
að sníða mér kjólinn.
Hvað fékkstu þar í kaup?
Þrjár álnir vaðmáls.
Hvað gerðiru við þær?
Ég sneið úr því stakk og hempu
og stangaða brók.
Konu minni pils og treyju,
húfu handa hundinum,
möttul handa músinni,
kjálkaskjól handa kettinum.
Ein gekk af alin
og hana fékk smalinn.
Hann hljóp í dalinn
og þá varð hann galinn.
Útg. Önnu Helgadóttur á Bjargi í Bakkagerði, Borgarfirði eystra
Drengurinn drjólinn,
hvar varstu um jólin?
Ég var uppi á Helgafelli
að sníða þar kjólinn
hvað fékkstu að launum?
Þrjár álnir vaðmáls
hvað gerðirðu við það
ég sneið mér úr því stutthempu
og stangaðar buxur.
Möttul handa músinni,
kjálkaskjól handa kettinum.
Konu minni hempu og pils
og þá gekk af valinn
hana fékk smalinn.
Datt hann ofan í dalinn
og þá var hann galinn.
Aumingja smalinn.