Aðfangadagur dauða míns er eldgamall íslenskur jólasálmur sem flakkaði um sveitir landsins í mismunandi útgáfum
Fyrirsagnir:
Aðfangadagur dauða míns
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag, líkist mjög laginu við fyrsta Passíusálm Hallgríms Péturssonar (f. 1614. d. 1674)
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Aðfangadagur dauða míns
drottinn þá kemur að
hyl mig í undum hjarta þíns
hef ég þar góðan stað.
2. Eilífrar gleði eg svo jól
jafnan haldi með þér
þá er upprunnin sú mín sól
sem að ég þrái hér.
3. Hlakkandi sér þá hugurinn minn
herra í gleði salinn þinn
Upp á þar hryggðar eina skál
Ég vil nú súpa fús.
4. Þegar þér drottinn þykir mál
þá leið mig í þín hús
Ég fel þér hjarta sinni‘ og sál
sætasti minn Jesús.