Fyrirsögn:
Helltu út úr einum kút
Lagboði:
Íslensk þjóðlög
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðgagrein:
Huldarmál og draugavísur; Kvæði úr þjóðsögum og ævintýrum; Íslensk þjóðkvæði
Önnur kvæði undir sama bragarhætti:
Einhvern tíma voru tveir kunningjar, annar ungur en hinn aldurhniginn. Er svo sagt að hann væri ölkær og hafði hinn yngri lofað að bjóða honum í veislu sína. En áður hún yrði haldin dó hinn gamli maður. Var hann grafinn á hinum sama kirkjustað og hinn kvæntist og var veislan haldin á kirkjustaðnum. Um nóttina dreymdi brúðgumann að vinur sinn kæmi til sín. Hann kvað:
Helltu út úr einum kút
ofan í gröf mér búna,
beinin mín í brennivín
bráðlega langar núna.
Hann fór á fætur og hellti úr fjögra potta kút yfir leiði vinar síns og dreymdi hann ekki framar.