Sesselja Eldjárn (1893-1987) fæddist að Tjörn í Svarfaðardal árið 1893. Sesselja dvaldi á Tjörn til ársins 1918 en það ár réð hún sig til starfa sem ráðskona á Dalvík. Sesselja var mjög virk í félagsmálum. Hún var ein stofnenda Kvenfélagsins Tilraunar og seinna var hún ein af stofnendum Ungmennafélags Svarfdæla. Sesselja þótti afar óeigingjörn og framtakssöm sem ráðskona. Öll fengu mat sem vildu og rukkaði hún lítið sem ekkert fyrir matinn. Hún starfaði lengi í slysavarnarmálum og var heiðursfélagi Slysavarnarfélgs Íslands. Sesselja kunni fjöldann allan af fornum kveðskap sem hún hafði lært af gömlu fólki í sveitinni ung að árum, t.d. Forðum tíð einn brjótur brands eftir Guðmund Bergþórsson. Sesselja lést árið 1987. Sagnadansar og vikivakaleikir sem sesselja þekkti voru þessir:
a. Frísakvæði
Sesselja Eldjárn