Fyrirsögn:
Það á að gefa börnum brauð
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag eða erlent lag.
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðvísa
Kvæðagrein:
Jólin; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Það á að gefa börnum brauð
að bíta í á jólunum.
Kertaljós og klæðin rauð
svo komist þau úr bólunum.
Væna flís af feitum sauð
sem fjalla gekk á hólunum.
Nú er hún gamla Grýla dauð,
gafst hún upp á rólunum.