Grýla reið með garði er mjög gamalt grýlukvæði og þjóðkvæði sem þekkist víða á vesturnorræna málasvæðinu (í Færeyjum og í Hjaltlandi). Þetta er því líklega með allra elstu grýlukvæðum, frá miðöldum.
Fyrirsögn:
Grýla reið með garði
Lagboði:
Íslensk þjóðlög
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Grýlukvæði; Þulur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Grýla reið með garði
gekk með henni Varði.
Hófar voru á henni
hangir toppur úr enni.
Dró hún belg með læri;
börn trú eg' þar í væri.
Gunna litla kom þar að
og klippti' gat með skæri.
Svo hleypti hún öllum börnunum' út
og svo trúi' ég hún færi.
Útgáfa Kristrúnar Matthíasdóttur (1923-2011) frá Fossi í Hrunamannahreppi:
Grýla reið með garði
gekk með henni Varði.
Belg hún dró við læri;
börn trúi' ég þar í væri.
Valka litla kom þar út
og klippti á gat með skæri.
Hleypti hún öllum börnunum út
og batt á hnút,
svo trúi' ég hún færi.