Fara börnin fram á pallinn er barnagæla og grýlukvæði frá 17. eða 18. öld. Hún var hið minnsta vel þekkt í Hálsasveit í Borgarfirði.
Fyrirsögn:
Fara börnin fram á pallinn
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Grýlukvæði, barnagælur; Vikivakakvæði; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Fara börnin fram á pallinn,
fella þau niður pípudallinn;
grípur í þau grílukarlinn,
grár og loðinn, eins og ljón;
– Boli og Grýla bæði hjón –
berja þau síðan beint í pallinn,
börn er sagt þau finni
– bera þau belg, burt úr loðnu skinni.