Allra flagða þula er ævaforn þula sem varðveist hefur í Vilhjálms sögu sjóðs (riddarasaga frá miðöldum). Í þulunni eru talin upp allmörg tröllanöfn. Hljómsveitin Savanna tríóið gerðu þuluna ógleymanlega þegar hún samdi lag við hana á 7. áratug síðustu aldar.
Fyrirsögn:
Allra flagða þula
Lagboði:
Glataður. Lag samið af Savanna tríóinu
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði úr Vilhjálms sögu sjóðs
Kvæðagrein:
Þulur; Galdur og forneskja; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Óvíst
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Líttu upp leikbróðir og láttu fólk þegja,
meðan að ég nefni níu tugi trölla.
Öll skuluð þið standa sem bundin við stjaka
::uns að ég hef út kveðið allra flagða:: þulu.
2. Fyrst situr Ysja og Arinnefja
Flegða, Flauma og Fletsokka.
Skrukka, Skinnbrók og Skitinkjapta.
::Bruppa, Blætanna og Belgy::gla.
3. Þá er Glossa og Gullinkjapta.
Gjálp, Gripandi og Greppa hin fimmta.
Drumpa, Klumpa og Dettiklessa.
::Syrpa, Svartbrún og Svarin::nefja.
4. Slúki, Slammi, Síðhnöttur, Hnikar,
Bjálki, Beinskefi, Baraxli og Ljótur.
Hrungnir, Haltangi, Hrauðnir, Vagnhöfði,
::Stórverkur og Stálhaus, Stritsamur:: og Völsi.
5. Granni, Skolli, Griður, Gerður, Fiskreki, Kampa,
Kolrosti, Kjaptlangur, Flangi og Dumpur.
Í dag springi og drepi hvert annað,
::illur sé endi áður þér:: deyið.
6. Þungar hefur þú mér þrautir fengið,
leiður loddari lymskur í orðum.
Þú munt sjálfur Svelnir heita,
::hefir móðir þín mig um það:: fræddan.
7. Hrærist heimar hristist steinar,
vötn við leysist villist dísir.
Öll ódæmi æri þursa,
::helveg troði heimskar:: tröllkonur.