Bjarni Þorsteinsson þjóðlagasafnari segir, að þessar vísur séu alkunnar alþýðuvísur og barnafælur
Fyrirsögn:
Það á að strýkja stelpuna
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Barnagælur; barnafælur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Það á að strýkja strákaling
Heimild/kvæðið á prenti:
Það á að strýkja stelpuna,
stinga henni oní mykjuna,
loka hana úti og lemja hana
og láta hann bola éta hana.
________________________
Þessar vísur eru yfirleitt einnig hafðar með:
Það á að strýkja strákaling
stinga' onum oní kolabing,
loka hann útí landsynning
láta hann hlaupa allt um kring.
Tíminn líður trúðu mér,
taktu maður vara' á þér
heimurinn er sem hálagler,
hugsaðu hvað á eftir fer.