Fyrirsögn:
Sofa urtu börn á útskerjum
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Ókunnur; þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Barnagælur; dýravísur; huldarmál; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Óvíst
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Sofa urtu börn
á útskerjum,
veltur sjór yfir,
og enginn, enginn, enginn þau svæfir.
2. Sofa kisu börn
á kerhlemmum,
murra og mala,
og enginn, enginn, enginn þau svæfir.
3. Sofa grýlu börn
á grjóthólum,
urra og ýla,
og enginn, enginn, enginn þau svæfir.
4. Sofa bola börn
á báshellum,
moð fyrir múla,
og enginn, enginn, enginn þau svæfir.
5. Sofa manna börn
í mjúku rúmi,
þau bía og kveða
og pabbi, pabbi, pabbi þau svæfir.