Fyrirsögn:
Hún rær og hún slær
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag. Sjá Jórunni Viðar, bls. 21.
Höfundur:
Ókunnur; þjóðvísa
Kvæðagrein:
Þulur; Barnagælur; Dýravísur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við
Heimild/kvæðið á prenti:
Hún rær og hún slær,
hún eltir lambær
ekkert þó í kaup fær
utan tvær
tannlausar gamalær,
hárlausar og hornbrotnar,
háskalega vitlausar,
beinlausar og brjósklausar,
brotnar á öllum tánum,
vöðvalausar og vamblausar,
vaðandi í snjánum.
Lungu ei lengur voru til
lifur öll á þrotum.
Hver vill glöggvast gera skil
gömlum kjálkabrotum?
Gollurinn var geysismár,
garnir í styttra lagi
og þótti engum bagi.
Nýrun voru næsta rýr,
nefni ég engan barka
og við það lætur pabbi gamli slarka!