Fyrirsögn:
Bíum bíum bíum bí
Lagboði:
Íslensk kvæðalög
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðvísa
Kvæðagrein:
Barnagælur; barnafælur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Útg. Guðrúnar Stefánsdóttur:
Bíum bíum bíum bí
börnunum sem drekka mjólk
sefur í og sefur í
svörtum poka þetta fólk.
Sefur í og sefur í
svörtum poka og liggur þar
bían bían bían bí
barninu hennar Guðrúnar.
Sefur í og sefur í
svörtum poka og tunnu
bían bían bían bí
barninu hennar Gunnu.
_______________________________
Útg. Guðmundar Þorsteinssonar frá Lundi:
Bíum bíum bíum bí
börnunum sem drekka mjólk
sefur, sefur, sefur í
svörtum poka þetta fólk
Bíum bíum bíum bí
barninu hennar Stínu
sefur sefur sefur í
svörtum poka þínum.
Bíum bíum bíum bí
barninu hennar Tótu
sefur sefur sefur í
svörtum poka ljótum.
_______________________________
Útg. Friðfinns Runólfssonar:
Bíum bíum bíum bí
börnunum sem drekka mjólk
sefur, sefur, sefur í
sínu rúmi þetta fólk.
Bíum bíum bíum bí
barninu hennar Tótu
sefur sefur sefur í
svartri fjallagjótu.