Fyrirsögn:
Við skulum róa rambinn
Lagboði:
Íslenskt þululag
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Barnagælur; Þulur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við
Heimild/kvæðið á prenti:
Aths.
Orðasambandinu „róa rambinn" bregður einnig fyrir í fyrsta erindi fornkvæðisins sem ber heitið Eilífs kvæði. Það kvæði er frá síðmiðöldum.
Við skulum róa rambinn,
rétt út á kambinn,
sækja okkur fiskinn,
færa hann upp á diskinn.
Rafabelti og höfuðkinn,
þetta fær hann faðir minn
í hlut sinn.
Það gefur guð minn.
Útgáfa Bjargar Björnsdóttur
Ró, ró og rambinn
rétt út á kambinn,
sækja okkur fiskinn,
og leggja hann upp á diskinn.
Rafabelti og höfuðkinn,
það er góði maturinn
þetta gefur drottinn
í eina suðu í pottinn.