Minni Forseta er þorrablótskvæði eftir Jóhannes Davíðsson (?)
Fyrirsögn:
Minni Forseta
Lagboði:
Óvíst með lagboða. Líklega sama lag og notað var við Þorvald víðförla eða Svend Tveskæg havde sig en Mand. Lagið hið síðarnefnda var að minnsta kosti notað við Þorláksbrag í Stúdentasöngbókinni frá 1894
Höfundur:
Jóhannes Davíðsson (?)
Kvæði undir sama bragarhætti:
Vér heitum á þann mæta mann - Upphaf: „Vér heitum á þann mæta mann." Eftir Björn M. Ólsen (f. 1850. d. 1919)
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Vér allra heilla óskum þér
Um æfitíð.
Og hvað þér helzt að höndum ber
Þá hertu stríð;
Og berstu meðan beitt er stál
Og blóð er heitt,
Sem kostaríkust kempusál
Og kvíð ei neitt.
2. Vér særum þig við sjálfan Þór
Að sýna dug,
Og hvíldarlaust að bergja bjór
Með berserkshug.
Og fallir þú, svo fylkjum vér
Með fullum móð,
Og hömmumst unz að hroðið er
Hvert horn hjá þjóð.