Fyrirsögn:
Krummabragur
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag, líklega gamalt vikivakalag
Höfundur:
Óþekktur. Íslenskt þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Dýravísur; vikivakakvæði; Vikivakar; jólin; jóladansar; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Barbörukvæði - Upphaf: „Dyspoteus hét drengurinn heiðinn". Höfundur ókunnur. Sjá Helgikvæði og Íslensk söguljóð
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Út um byggðir Ísa hæða,
á Eyrarbakka bar til mæða,
kvitt til jóla keyptist fæða
kjötið er á förum hér.
– En trygða vinur trúðu mér.
2. Heitir krummi halurinn skæður,
höllu sem að borgar ræður,
vífi Fofnis veitir glæður,
vel hjá gumum unir sér.
– Trygða vinur trúðu mér.
3. Vífið tér við veiti spánga;
„Vítt um frónið máttu gánga,
ef kind til jóla kynnir fánga,
og krónupúnginn tak með þér."
– Trygða vinur trúðu mér.
4. Fór á stað með feikna kæti,
feta náði vítt um stræti
mörgum trúi' eg manni mæti,
mæðin brjóst og hjarta sker.
– Trygða vinur trúðu mér.
5. Hjá Beingarð herra blessan náði,
býsna væna kind þar þáði,
fór hann þá sem flýfi á láði,
ferðast heim og barkann mer.
– Trygða vinur trúðu mér.
6. Á stað fór í öðru sinni,
ei var þessi reisan minni,
fór um löndin sem frá eg kynni
fyrðum þeim, sem hlýða mér.
– Trygða vinur trúðu mér.
7. Um Írland, Skotland, Frísland, Frakka
fala náði gimbrarkrakka
krónur bauð sem kunni snakka,
við kínska og Tyrkjann rétt sem ber
– Trygða vinur trúðu mér.
8. Bónaparte í bragði snöggur
(brandi beitir og til hans leggur)
hljóp hann þá og hælum höggur
hafið, grund og foldarver.
– Trygða vinur trúðu mér.
9. Fall af hrúti fekk til jóla,
fýsti marga af því hóla,
sótti' hann það í Svarta-skóla,
sæmilega núna fer.
– Trygða vinur trúðu mér.
10. Aftur komst úr ferða flani,
firða er það gamall vani,
bilsast hann þó böl að gani,
býsna lasinn eptir er.
– Trygða vinur trúðu mér.
11. Úr augnaköllum öllum snúinn,
er það ert að lækni frúin,
burtu lokin, brókin lúin,
beina gögtir grindin ber.
– Trygða vinur trúðu mér.
12. Um krofið hrúts nam kroppa svona,
krummi náir til þess vona,
að sér í liðinn kippi kona,
kænt því listir margar ber.
– Trygða vinur trúðu mér.
13. Hann nótera kút sár kalla
kappar þeir sem um það spjalla,
þegar náði þjóð til falla
þetta, sem eg greini hér.
– Trygða vinur trúðu mér.
14. Krummabragur kann að heita
þó kæti veki ótal sveita.
Bæti við þeir bragar leita
og báðu um ljóðin handa sér.
– Trygða vinur trúðu mér.