Eitt vikivakakvæði er vikivakakvæði sem varðveitt er í handritunum Add. Mss. nr. 11,181,16,1, 95-96. bl. Þetta kvæði er varðveitt í handritum í British museum
Fyrirsögn:
Eitt vikivakakvæði
Lagboði:
Týndur. Tillaga að lagboða: Lög við Sofðu ætíð sætan dúr eða Kvæðiskorn af þeim rúmlata ferða-Knút
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Vikivakakvæði; Vikivakar; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Eitt vikivakakvæði - Upphaf: „Margt trúi' eg hrelli mína önd." Vikivakakvæði
Kvæðiskorn af þeim rúmlata ferða-Knút - Upphaf: „Kepptist við að koma í Róm/ og kaupa sér þar helgidóm." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688) eða síra Guðmund Erlendsson (f. 1595. d. 1670). Íslenskt þjóðlag varðveitt inn á segulbandasafni Árnastofnunar
Sofðu ætíð sætan dúr - Upphaf: „Sofðu ætíð sætan dúr." Eldgömul barnagæla og vögguvísa. Íslenskt þjóðlag varðveitt við vísuna.
Heimild/kvæðið á prenti:
Íslenzkir vikivakar og vikivakakvæði, 1894, bls. 157-158.
Viðlag: Frið og blessan fái þér
framan en eg kann greina.
Sértu firtur fári allra meina.
1. Sé þín aldrei sæmdin lægð,
sætleiks dygð og sóma nægð.
Um aldir haldist yðar frægð
og auðnu lánið hreina.
Sértu firtur fári allra meina.
2. Vináttan guðs og virða með
verði yður um æfi léð,
við hrekkjum öllum heimsins séð.
Hindran fáið ei neina.
Sértu firtur fári allra meina.
3. Hvar þú sveimar um sjó eður láð,
sjá þú til hið bezta ráð,
að biðja guð um blíða náð,
svo bresti' ei hjástoð neina.
Sértu firtur fári allra meina.
4. Við óvinum gæt þú öllum þín;
auka þeir jafnan sára pín.
Illskan þeirra aldrei dvín,
en elsku hafa ei hreina.
Sértu firtur fári allra meina.
5. Lítist þér einhver vera þinn vin,
vittu hvort það er meir en dyn;
haus á háttum haf það skyn,
hvort trygð hann haldi hreina.
Sértu firtur fári allra meina.
6. Vinur minn góður, við honum þú
varaðu einnin börn og hjú.
Hugsaðu um hvort heldur trú
og hjartans prýði hreina.
Sértu firtur fári allra meina.
7. Voldugur guð yður veiti lið,
svo vélum heimsins sjáir við,
setji' hann yður í sælufrið,
svo kennið eingra meina.
Sértu firtur fári allra meina.
8. Frá hrygðum öllum haldi þig
hæstur guð og sjálfan mig.
Á vondu öllu vinnur svig
verndan hans hin hreina.
Sértu firtur fári allra meina.