(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Valdimar Ásmundsson (f. 10. júlí 1852. d. 17. apríl 1902) frá Hvarfi í Bárðardal var ritstjóri, þýðandi og skáld. Eiginkona Valdimars var Bríet Bjarnhéðinsdóttir baráttukona fyrir réttindum kvenna. Valdimar var sjálfmenntaður og ekki skólagenginn. Hann gerðist þó ritstjóri fyrir tímaritið Fjallkonuna árið 1884 og sinnti því starfi til æviloka. Valdimar var einnig iðinn útgefandi; hann gaf út Íslendingasögurnar fyrir Sigurð Kristjánsson og samdi Ritreglur sem nutu mikilli vinsælda. Valdimar var mikilvirtur þýðandi og skáld, þýddi Drakúla yfir á íslensku eftir Bram Stoker og orti Glúm og Geirlaugu sem nutu mikilla vinsælda um allt land.
Kvæði Valdimars með þjóðlögum
Glúmur og Geirlaug - Upphaf: „Tunglið glotti gult og bleikt."