(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Svartur Þórðarson (f. á 14. öld). Hann var húskarl Ólafar ríku á Skarði á Skarðsströnd eða „Ólöfar hústrú" eins og honum er lýst í handritum. Honum eru eignaðar barnagælan Skaufhalabálkur og Skíðaríma. Ekkert annað er vitað um þennan Svart. Einhvern tímann mun hann þó hafa búið á Hofstöðum í Reykhólasveit.
Kvæði og rímur eftir Svart Þórðarson „Ólöfar hústrú":
Skaufhalabálkur - Upphaf: „Hefir í grenjum/ gamall Skaufhali". Barnagæla