(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Staðarhóls-Páll (f. um 1534. d. 1598). Hann hét fullu nafni Páll Jónsson. Hann var sýslumaður og bjó um nokkurt skeið á Staðarhóli í Dölum. Páll nam í Munkaþverárklaustri. Hann kvæntist Helgu Aradóttur (f. 1538. d. 1614), dóttur Jóns Arasonar biskups (f. 1484. d. 1550). Urðu miklar ástir með þeim fyrst um sinn, eins og frægt er, en að lokum versnuðu samskiptin þeirra í milli sem endaði með skilnaði. Páll var mikið skáld og orti m.a. Eikarlundinn.
Kvæði Staðarhóls-Páls með þjóðlögum:
Ýtar sigli austur um sjó - Upphaf: „Ýtar sigli austur um sjó."