(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Síra Sigfús Árnason (f. 1790. d. 1822). Hann var prestur. Stúdent 1808. Hann missti prestskaparréttindi fyrir barneign 1815 og fékk því ekki að vera aðstoðarprestur föður síns "en á heimili hans var brotið framið." Fékk þó uppreisn. Settur sýslumaður í Norður-Múlasýslu 1815-17 og vígðist 2. ágúst 1818. Aðstoðarprestur sr. Samúels Björnssonar að Dvergasteini en drukknaði nokkrum árum síðar í Lagarfljóti. Var skáldmæltur og talinn prýðilega gefinn.
Kvæði Sigfúsar með íslenskum þjóðlögum:
Hákarlsbragur - Upphaf: „Sögu ég segja vil/ sem hingað fregnin bar."