(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Björn Halldórsson (f. 4. nóvember 1823. d. 19. desember 1882) var prestur, skáld og Þjóðfundarmaður, fæddur að Skarði í Dalsmynni (Eyjaf.). Hann er langalangafi höfundar þessarar vefsíðu. Björn var prestur í Laufási í Eyjafirði frá 1853 til æviloka. Björn var mikilvirt sálmaskáld og orti marga fallega sálma á borð við Sjá himins opnast hlið og Á hendur fel þú honum. Um 24 sálmar eru eftir hann í Sálmabók íslensku kirkjunnar. Björn var ekki síður veraldlegt skáld og orti margt gott, t.d. þorraljóðið Þorri kaldur þeytir snjá.
Kvæði eftir Björn Halldórsson:
Farðu að sofa mangi minn - Kvæði með hálfgerðu viðlagi. Sjá https://timarit.is/page/5968750#page/n1/mode/2up og https://ismus.is/bragi/erindi/2536
Þorri kaldur þeytir snjá - Upphaf: „Þorri kaldur þeytir snjá." Sjá Þorrakvæði