Fyrirsögn:
Ísleifur Einarsson
Lagboði:
Höfundur:
Bjarni Thorarensen (f. 1786. d. 1841).
Kvæðagrein:
Erfiljóð
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Nú er mæringur moldu falinn,
móðurjörð föl sem visið lauf;
sannkölluð hné þar hetja í valinn,
þá hýðið sjúka öndin rauf
Ísleifs, sem landi ísa mest
unni þess sona flestra og bezt.
2. Daprasta vitum Íslands árið,
útlent er þýið lýði sló;
æ mundi vansa svella sárið,
sem oss dugnaðarleysið bjó,
ef þess svartnættis einn af fám
ei væri hann stjarna á himni blám.
3. Í héraðsstýrslu ungur áður
ýtrasta sýndi hann vit og magn;
í framkvæmd bæði ör og gáður,
ei honum nægði pappírsgagn.
Minning í elsku æ mun hans
í ýtrasta hluta Norðurlands.
4. Eins og hann þekti lesti lesti
og lasta iðgjöld þeim til fann,
svo þekti hann einnig bresti bresti
og blíðu með þá dæma vann,
en lögum hlýðinn, landi trúr,
lagafarvegi vék ei úr.
5. Því lýða vildi hann gagn ei gefa,
að geta sér með því heimskra lof;
slíkt taldi hann fyrir utan efa
á eiði vera og skyldu rof;
sá hann, við skálka miskun mest
við menn er fróma grimdin vest.
6. Aldraður hann hjá ungum glæddi
óskir að verða prýði stands,
og orðum vitrum einatt fræddi
efni stýrenda þessa lands;
mörgu þar sáði hann, mörgu af því
mun þróast eitthvað landi í.
7. Einhver tryggasti vinur vinum,
í verki sýndi trygð og dáð;
hreinn og einlægur öllum hinum,
aldrei gaf neinum Lokaráð;
sálarsterkasti hjartahreinn,
hræddist drottinn, en mann ei neinn.
8. Ísleifs má lengi Ísland sakna;
ef væru margir líkar hans,
dugnaður mundi að vísu vakna
víða í bygðum þessa lands,
og færri sættast ýtar við
embættisleti og stjórnleysið.
9. Þér, ungu menn, sem Ísafjarðar
eruð framöld og hennar börn,
þá lítið græna leiðið svarðar,
sem líks er Ísleifs hinzta vörn,
yfir því vinnið eiðinn þann,
að elska föðurláð, sem hann.