Stjörnuskoðarinn er ástarljóð eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841) amtmann á Möðruvöllum. Kvæðið er sungið við íslenskt þjóðlag.
Fyrirsögn:
Stjörnuskoðarinn
Lagboði:
Lagið er íslenskt þjóðlag úr Laxárdal í Þingeyjarsýslu. Maður að nafni Benedikt Jónsson á Auðnum skráði þetta lag hjá sér ásamt mörgum öðrum þjóðlögum. Lagið heyrði hann þegar hann var ungur.
Höfundur:
Bjarni Thorarensen (f. 1786. d. 1841)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Óvíst
Heimild/kvæðið á prenti:
Efni kvæðis:
Kvæðið er ástarljóð sem Bjarni yrkir til Svövu. Kvæðið er einungis eitt erindi.
Blástjarnan þótt skarti skær
hún skal ei framar pína
sjón mína
því aðrar fegri eru tvær
er mér tindra miklu nær
og undir Svöfu augnabrúnum skína.