ÍFk númer:
ÍFk 46
VÓ númer:
VÓ 19
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Systra kvæði
Agnesar kvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Tvö íslensk þjóðlög
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Enginn maður það vissi
– á meðan það var –
utan mín yngsta systir
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
2. Systir sagði móður það,
– á meðan það var –
vissum við af því allar þrjár.
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
3. Móðir talaði nokkur orð,
– á meðan það var –
það fluttist fram á kóngsins borð.
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
4. Kóngurinn sendi mann til mín,
– á meðan það var –
beiddi mig að ganga í höll til sín.
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
5. „Þú munt verða að segja mest
– á meðan það var –
hvörjum unnir manni best."
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
6. „Vilkin var sá mannsari ríkur,
– á meðan það var –
enginn fæðist annar slíkur."
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
7. „Heyrðu það, litla Agnes mín,
– á meðan það var –
hvað fekk hann þér fyrir viljann sinn?"
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
8. „Sá er hringur af brenndu gulli,
– á meðan það var –
eg borgaði um síðir hann að fullu."
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
9. „Kallið á Vilkin hann komi til mín,
– á meðan það var –
spillt skal hann sjálfri eigu sín."
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
10. Hægra fæti í höllina sté:
– á meðan það var –
„Sitjið heill, kóngur, hvað viljið mér?"
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
11. „Heyrðu það, Vilkin, mannsari ríkur,
– á meðan það var –
Agnes unga er þinn líki."
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
12. Agnes faldar höfuð með lín,
– á meðan það var –
Vilkin blandar mjöð og vín.
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.
13. Tólf áttu þau börnin,
– á meðan það var –
fleiri áttu þau kastalana,
– og það fór þar
þó hlaut eg minn harm að bera í leyndum stað.