ÍFk númer:
ÍFk 2
VÓ númer:
VÓ 2
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Elenar ljóð
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Kvæði af vallara systrabana - Upphaf: „Þorkell átti sér dætur þrjár." (ÍFk. 15). Stundum einnig nefnt Systra þula.
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
I
1. Elen litla kvað so hátt,
– laufið á þann linda, –
heyrði nykur í vatni lá.
– Allt er óhægra að leysa en að binda.
2. Elen beiddi föður sinn:
„Lofaðu mér til vökunnar inn.“
3. „Þú skalt ei til vökunnar gá,
þig kann margur dárinn sjá.“
4. „Fari dárinn sem hann kann,
eg skal mig til vökunnar fram.“
5. „Far vel, far vel, dóttir mín,
slíkt gjörði aldrei móðir þín.“
6. Elen litla kvað svo hátt,
það heyrði nykur í vatni lá.
7. Nykurinn tók sinn gangvara grá,
setti gylltan söðulinn á.
8. Hann tók í hennar hægri hönd,
batt hana við sín söðulbönd.
9. Riðu þau so með vatni fram,
Elen beiddi hvíldar hann.
10.„Eg skal gjarnan hvíla þig
ef þú lofar að eiga mig.“
11.„Eg því ekki nenni.“
So hvarf hann frá henni.
12.Elen snerist heim í leið,
– laufið á þann linda, –
hún lofaði guð það varð ei meir.
– Allt er óhægra að leysa en að binda.
II
1. Kristín beiddi föðurinn há:
–––
– setjum gullsöðulinn á gangvarann væna,
við skulum ríða í lundinn þann græna.
2. „Þú skalt ei til gleðinnar gá,
– setjum gullsöðulinn á –
þar er margan dárann að sjá.“
– Hin væna,
við skulum ríða í lundinn þann græna.
3. „Piltar, sæki þið gangvarann grá,
þar skal Kristín sitja upp á.“
4. Svo var búið um beislaþing,
sextíu bjöllur allt um kring.
5. Kristín reið frá borgarhlið.
pípur og simfón sungu við.
6. Kristín reið frá borgarkrans,
með henni reið þar sextíu manns.
7. Með henni reið það sama sinn
meyjar tólf og riddarar fimm.
8. Kristín reið svo hart og snjallt
að heyrðist út um landið allt
9. Kristín reið svo hart sem má,
það heyrði nennir í vatni lá.
10. Þegar hún nefndi nennir,
– setjum gullsöðulinn á –
þá hvarf hann frá henni.
– Hin væna,
við skulum ríða í lundinn þann græna.