Stefanía Sigurðardóttir (1879-1972) fæddist á Hánefsstöðum í Mjóafirði, Norður-Múlasýslu, árið 1879. Foreldrar hennar voru þau Sigríður Vilhjálmsdóttir og Sigurður Stefánsson á Hánefsstöðum. Stefanía lærði hannyrðir í Reykjavík ung að árum. Seinna fer hún aftur til heimahaga sinna að Hánefsstöðum. Þar lærir hún nótnalestur hjá frænda sínum Jóni Árnasyni orgelleikara. Hún var virk í störfum sinnar heimabyggðar, þ.á m. því er snerti fiskvinnslu og samgöngur sjóleiðis. Stefanía giftist Hjálmari Vilhjálmssyni, bónda á Brekku í Mjóafirði. Stefanía lést árið 1972 í hárri elli. Sagnadansar sem Stefanía þekkti voru þessir:
a. Kvæði af vallara systrabana
b. Giptingahjal (Mín mín dóttirin fríða)
Stefanía Sigurðardóttir á Hánefsstöðum í Mjóafirði