Sigurður Kristjánsson í Hrísdal (1888-1969) fæddist á Hjarðarfelli á Snæfellsnesi í október 1888 og ólst þar upp til fullorðinsára. Fyrri eiginkona hans var Sigríður Jónsdóttir frá Eiðhúsum. Hún lést af barnsförum. Seinni eiginkona Sigurðar var Elín Árnadóttir. Sigurður og Elín fluttust búferlum í Hrísdal, Hnappadalssýslu (Snæfellsnesi) sem þá var óbyggð eyðijörð. Breyttu þau jörðinni í stórbýli og voru þau hjón höfðingjar heim að sækja. Sigurður var mikill sagnamaður; hann þótti afar félagslyndur, hressilegur og hispurslaus. Hann var og minnugur og fróður, kunni vel Andrarímur. Merkilegast af öllu var kunnátta hans á kvæðinu um Ólaf liljurós. Hann þekkti öll erindin og söng þau öll utanbókar, afar fallega, á segulband. Sigurður lést árið 1969. Sagnadansinn sem Sigurður þekkti var þessi:
Sigurður Kristjánsson í Hrísdal