Karlinn undir klöppunum er merkileg barnafæla, hvorki um Grýlu, Leppalúða né Skrögg, heldur um Klappakarlinn svokallaða sem var vel kunnur í Grímsey norðan lands.
Fyrirsögn:
Karlinn undir klöppunum
Lagboði:
Líklega hefur það verið sama lag og við Þjófabrag eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688).
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Barnagælur; Barnafælur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Ath. Skoða betur þennan bragarhátt. Mig minnir að eitthvað kvæði eftir Stefán Ólafsson í Vallanesi hafi verið undir þessum bragarhætti. Með viðlaginu í lokinn --> „í leyni".
Heimild/kvæðið á prenti:
Karlinn undir klöppunum,
klórar hann sér með löppunum;
baular undir bökkunum,
og ber sig eftir krökkunum
á kvöldin.