Urtragarð eg hefi plantað er afmorskvæði varðveitt í tónlistarhandritinu Melódíu
Fyrirsögn:
Urtragarð eg hefi plantað
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag. Sjá Bjarna Þorsteinsson 1906–1909, bls. 245. Lag nr. 79 í tónlistarhandritinu Melódíu.
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Afmorskvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Óvíst
Útgáfur:
Bjarni Þorsteinsson 1906–1909, bls. 245.
Urtragarð ég hefi plantað,
sem oft mitt girntist sinn;
orku hefur ei til vantað,
að efla gjörning minn;
það fellur mér þrátt í þanka,
að þrisvar megi sá banka,
sem þar vill komast inn.
Heimildir:
Bjarni Þorsteinsson. (1906–1909). Íslenzk þjóðlög. Kaupmannahöfn: S.L. Møller.