Meyjan mektuglega er afmorskvæði varðveitt í tónlistarhandritinu Melódíu
Fyrirsögn:
Meyjan mektuglega
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag. Sjá Bjarna Þorsteinsson 1906–1909, bls. 242. Lag nr. 71 í tónlistarhandritinu Melódíu.
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Afmorskvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Óvíst
Útgáfur:
Bjarni Þorsteinsson 1906–1909, bls. 242.
Meyjan mektuglega
mætust þiggi ljóð;
ber ég nú beiskan trega,
brúðurin fyrir þig rjóð;
ef að ég yndi þínu
að mér gæti kippt, angri' og allri pínu
af mér væri þá svipt.
Heimildir:
Bjarni Þorsteinsson. (1906–1909). Íslenzk þjóðlög. Kaupmannahöfn: S.L. Møller.