Fyrirsögn:
Stígum við stórum
Lagboði:
Íslenskt þululag
Höfundur:
Ókunnur; þjóðvísa
Kvæðagrein:
Þulur; Barnagælur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við
Heimild/kvæðið á prenti:
Stígum við stórum
stundum til grunda,
belg ber ég eftir mér
til barnanna funda.
Hér læt ég skurka
fyrir skáldadyrum.
Vaknaðu Gýgur!
Ei vill Gígur vakna.
Er orðið framorðið?
Sól á milli augna þinna,
sofa máttu lengur
einn dúrinn drengur.
Önnur útgáfa lengri með fornu þululagi:
Stígum við stórum
stundum til grunda,
belg ber ég eftir mér
barnanna fullan.
Hér læt ég skurka
fyrir skáldadyrum.
Vakna þú Gýgur!
Eigi vill gýgur vakna
Hver er komin úti?
Björn á brotnu skipi
Hvað vill hann Björn?
Biðja um nálar.
Hvað vill hann með nálar?
Sauma að segli.
Hvað er að segli?
Slitið af veðri.
Hvað gerðir þú við nálarnar
sem ég fékk þér í fyrragær?
Ég fékk Hala bróður þær.
Hvað gerðir Hali bróðir við þær?
Hann fleygði hann út á miðjar götur
og sagði þau skyldu brenna
á baki þeirrar sem ættu.
Hvað ertu að gera núna?
Ég er að syngja á tölur mínar
eins og hvert annað gott barn í kvöld
því heilagt er á morgun.
Enn önnur útgáfa þar sem dreginn er seimur:
Hér læt ég skurka
fyrir skáldadyrum.
Hver er kominn úti?
Björn á brotnu skipi.
Hvað vill hann Björn minn?
Biðja um nálar.
Hvað vill hann með nálar gera?
Sauma að segli.
Hvað gerðiru að nálunum
sem ég fékk þér í fyrradag?
Ég fékk Hala bróðir.
Hvað gerðir Hali bróðir af?
Hann kastaði þær út á miðjar götur
0g sagði skyldu brenna
á baki þeim sem ætti.