Fyrirsögn:
Karl tók til orða
Lagboði:
Íslenskt þululag
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Þulur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við
Heimild/kvæðið á prenti:
Karl tók til orða,
mál væri að borða,
þá kom inn diskur
var á blautur fiskur,
hákarl og rætur
og fjórir sviðafætur.
Upp tók hann einn,
ekki var hann seinn,
gerði sér úr mann,
Grettir heitir hann.
Hvað kann Grettir vel að vinna ?
Hann fór út í eyjar
Svæfði þar meyjar
Kýr og kálfa.
Og keisarann sjálfan.
Lambið beit í fingur minn.
Spói féll í áragil
Tittlingur í mýri
Setti upp á sig stýri
Úti er ævintýri.
[Oft var þulan Karl og kerling höfð á undan þessari þulu]