Fyrirsögn:
Hallsteinn á Hesti
Lagboði:
Þululög
Höfundur:
Ókunnur (líklega einhver Borgfirðingur). Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Þulur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við
Heimild/kvæðið á prenti:
Hallsteinn á Hesti*
sá var maðurinn mesti.
Enginn bóndi í Borgarfirði
betur hirðir gesti
en Hallsteinn á Hesti.
Þórunn heitir konan hans
hún öngvum lofar hjá sér að sofa.
Þar kom Grímur Einarsson
og hélt á gylltum geiri
og að Þórður Þorsteinsson
og aðrir nokkrir fleiri.
Þessir riðu norðan að
upp undir bóndann á Stað.
Þórður drukkinn,
þetta kvað þó ég vildi bíða
allir riðu ójafnað.
En engu skuluð þið kvíða
Því gott er að ríða
sandana mjúka
það gerir ekki hestana sjúka
það sjáum við á bæjunum rjúka
og matseljurnar bera mat
og breiða niður dúka
en ekki skulum við skyrinu öllu
í Skagafirði ljúka.
*Hér er mögulega átt við Hallstein Höskuldsson bónda á Hesti. Fæddur um 1400.