Faðir minn er róinn er gömul íslensk þula og barnagæla sem hefur verið einhvers konar ljóðaleikur fyrir börn fyrr á öldum. Um ljóðaleiki er átt við þegar fóstra tekur barn á kné sér og rær með það í takt við hreyfingu barnsins. Yfirleitt fylgdi ljóðasöngur með í kjölfarið.
Fyrirsögn:
Faðir minn er róinn
Lagboði:
Íslenskt þululag
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Þulur; Barnagælur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við
Varðveisla:
Þessi þula var send Fornfræðafélaginu í Kaupmannahöfn árið 1853. Til er önnur uppskrift af þulunni með rithönd Lárusar Helgasonar, sonar Helga Sigurðssonar á Melum (Lbs. 3387 8vo).
Meðhöndlun þulunnar í tímans rás:
Þulan var vinsæl um allt land og fjölmargir kunna hanna enn munnlega.
Heimild/kvæðið á prenti:
Faðir minn er róinn
langt út á sjóinn
að sækja okkur fiskinn
að færa upp á diskinn.
Rafabelti og höfuðkinn
berum við í bæinn inn,
og það gefur guð minn.