Þorrablótsvísur 1863 eftir Matthías Jochumsson (f. 1835. d. 1920). Lagið er gamli ríkissöngurinn danski sem ber heitið Kong Christian stod ved højen Mast.
Fyrirsögn:
Þorrablótsvísur
Lagboði:
27. Söngur Fredmans eftir Bellman
Höfundur:
Hannes Hafstein (f. 1861. d. 1922)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Nú drekkum, drekkum, drekkum burt
vort dauða-blóð!
Að bíta lengi brauðið þurt
og bryðja lífsins remmi-jurt,
það gjörir lífið kalt og kjurt
í klakaþjóð.
Því teygum í oss hetju-hug
:,: og hressum lífs og sálar dug :,:
og móð!
2. En nú er önnur öld, en þá
er Egill sat
á ölbekk forðum Ármóð hjá
og alla skelfði', er horfðu á,
þær holskeflur af horna-sjá,
sem hirt hann gat;
og ætli meira ættum vér
:,: hjá Agli bónda' í „karaktér" :,:
en „gat"?
3. Þótt bannað sé að bera hjör
og bana-spjót,
þarf enn að verja frelsi' og fjör
og forðast marga lyga-ör
og efla lands vor auðnu-kjör
með endurbót.
Því framför Íslands frelsi, trú
:,: í fornum anda signum nú :,:
vort „blót"!