Fyrirsögn:
Vefarinn
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Árstíðirnar; Þorrablótskvæði; Önnur danskvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Annað:
Kvæðið hefur verið notað í hringdansi
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Nú vefum við mjúka
og dýrindis dúka
:,:Vefum mjúka, dýra dúka
Rennum skyttunni í skil:,:
2. Nú rekjum við þræði
Í ró og í næði
:,:Rekjum þræði í ró og næði
Kljáum vef okkar vel:,:
3. Nú skerpum við skilin
Og brúum svo bilin
:,:Skerpum skilin, brúum bilin
Rennum skyttunni skil:,:
4. Og þræðirnir slitna
Og spólurnar sprikla
:;Þræðir slitna, spólur sprikla
Bætum vef okkar vel:,:
5. Nú vef okkar sláum
Og víindin fágum
:;Vefinn sláum, víindin fágum
Rennum skyttunni skil:,:
6. En hvað er að tarna
Því stendur þú þarna?
:,:Hvað er að tarna, stendurðu þarna
Eins og þvara í pott!:,:
7. Og sjáið nú rifin,
Svo þrekin og þrifin
:,:Sjáið rifin, þrekin þrifin
Víst er voð okkar löng:;
8. Nú reynum við vefinn
Og styttum svo stefin
:,:Reynum vefinn, styttum stefin
Tökum hraustlega á:,: