Fyrirsögn:
Tröllaslagur
Lagboði:
Þjóðlegt lag eftir Jón Ásgeirsson
Höfundur:
Ókunnur. Tröllaslagur/ þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Annað:
Sumir hafa reynt að tengja tröllaslagi við hina norsku Halling-dansa.
Heimild/kvæðið á prenti:
Hríð gríðar hörð reið
hrönnum svo tönnum að mönnum
gnísti nistin gulls hast,
sá gangur var langur og strangur.
Söng spöngin seims grund
sjálfar heims álfur þá skjálfa.
Dundu undir dverglönd
drósar við glósur á Ósi -
dansaði fansinn ós unns
svo öllum lá tröllum við föllum.
Sá dagur er mér í minni
meður þjáning sinni;
hestar sprungu
af harki þungu,
heitur sem þeim brynni
eldur í nösum inni
þá Eyvör sprakk í skinni.
Fer her ei fótspar
flokkum vér brokkum með stokkum,
undir grund og yfir lönd
á eykjum svo feykjum vér reykjum.
Vindur blindar vogsund,
vökum vér tökum við rökum,
hryllir illa, hríðgöll
hreppum, vér sleppum af greppum.
Gull er grams múta,
geymdu það Rúta,
látum slúta
lengi lúta.
Svo kváðu meyjar undir Skjaldbreiðarskúta.
Fimtíu í flokki saman
frömdu þetta gaman.