Giftingaleikir voru vinsælir á vökunóttum. Einungis eitt þjóðlag hefur varðveist af þessum leikjum og er það við Giftingahjal (Mín mín dóttirin fríða).
Kvæðagrein:
1. (Faðirinn:) Mín mín dóttirin fríða!
Hversu lengi ætlar þú þér mannlaus að bíða?
(Dóttirin:) Bíð ég sem aðrar
bjóðist mér enginn.
(Faðirinn:) Viltu eiga fjósamanninn?
Þá mun þér lengi
gott búið ganga.
(Dóttirin:) Ó nei minn faðir minn
aum eru ráðin þín
fjósmannin vil eg ei
og við honum seg ég nei.
Hann stjanar undir baulurass
og ber saman skítahlass.
Vond er sú sem þess á að bíða
að sofa hjá honum fjósmanni síðan.
2. (Faðirinn:) Mín mín dóttirin fríða!
Hversu lengi ætlar þú þér mannlaus að bíða?
(Dóttirin:) Bíð ég sem aðrar
bjóðist mér enginn.
(Faðirinn:) Viltu eiga fjármanninn?
Þá mun þér lengi
gott búið ganga.
(Dóttirin:) Ó nei minn faðirinn
aum eru ráðin þín.
Fjármanninn vil eg ei
og við honum seg ég nei.
Hann stjakar fram á stöng
og styttir fyrir sig dægrin löng
Vond er sú sem þess á að bíða
að sofa hjá honum fjármanni síðan.
3. (Faðirinn:) Mín mín dóttirin fríða!
Hversu lengi ætlar þú þér mannlaus að bíða?
(Dóttirin:) Bíð ég sem aðrar
bjóðist mér enginn.
(Faðirinn:) Viltu eiga prestmanninn?
Þá mun þér lengi
gott búið ganga.
(Dóttirin:) Ó nei minn faðirinn
aum eru ráðin þín.
Prestlinginn vil eg ei
og við honum seg ég nei.
Hann ruslar í blöðunum sínum
og sinnir ekkert þörfunum mínum.
Vond er sú sem þess á að bíða
að sofa hjá honum prestlingi síðan.
4. (Faðirinn:) Mín mín dóttirin fríða!
hversu lengi ætlar þú þér mannlaus að bíða?
(Dóttirin:) Bíð ég sem aðrar
bjóðist mér enginn.
(Faðirinn:) Viltu eiga kaupmanninn?
Þá mun þér lengi
gott búið ganga.
(Dóttirin:) Ó já minn faðirinn
ágæt eru ráðin þín
kaupmaninn vil eg fá
og við honum seg ég já.
.........
Gott er sú sem þess á að bíða
að sofa hjá honum kaupmanni síðan.