Í vísunni bregður fyrir viðlaginu: Samt er eg einn í sonatölu Nóa. Viðlag þetta hefur síra Ólafur Guðmundsson á Sauðanesi (f. 1537. d. 1609) við Ellikvæði sitt. Sjá: https://ismus.is/bragi/ljod/2316 og https://handrit.is/manuscript/view/is/SAM-0120a-I/185?iabr=on#page/92v/mode/2up.
I
Tittur er beinn og tittur er beinn
tekinn er ég að hóa
– Samt er ég einn og samt er ég einn
í sonatölu Nóa.
Af vörum Halls í Garði á Tindastól, Sauðárkróki. Skráð af Bjarna Þorsteinssyni þjóðlagasafnara 17.02.1901. Sjá https://handrit.is/manuscript/view/is/SAM-0120a-I/185?iabr=on#page/92v/mode/2up
II
Tittur er beinn og tittur er beinn
tekinn er :,: ég að hóa :,:
– Samt er ég einn og samt er ég einn
í :,: sonatölu Nóa :,:
Af vörum Hólmars Magnússonar trésmiðs (f. 1914. d. 1995). Sjá https://ismus.is/einstaklingar/1000323