Sigurður Guðmundsson málari getur þesa kvæðis neðanmáls í Skýrslu um forngripasafn Íslands II. bls. 120 Nr. 701, og segir, að það sé eignað séra Stefáni Ólafssyni, en hann tilfærir ekkert úr því. Þetta kvæði hefi eg hvergi fundið, og veit því ekkert um það að segja. Jónas Jónsson dyravörður latínuskólans segir í bréfi til mín 21. Martz 1885, að hann hefi heyrt kvæðið byrji svo:
Vesalings pilsið mitt hið forna
Kvæðið er að minnsta kosti 5 erindi að tölu eptir því, sem ráða má af orðum Sigurðar málara.
https://handrit.is/manuscript/view/is/JS08-0130/225?iabr=on#page/108v/mode/2up