Gloria tibi, domine er hálfgert vikivakakvæði og sálmur. Kvæðið er varðveitt í Hymnodiu sacra. Lagið við kvæðið var einnig notað við sálminn Í dag er Kristur upprisinn en sálminn má finna í Grallaranum. Sjá BÞ 1906-1909 bls. 434-435.
1. Guði sé heiður og eilíf þökk
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Sem oss hefur gefið mat og drykk.
Gloria tibi, Domine.
2. Vorum guði sé eilíft lof
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Oss skenkir marga náðargjöf.
Gloria tibi, Domine.
3. Hve máttugur er herran sá.
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Er hverri skepnu náðast má.
Gloria tibi, Domine.
4. Og hans er bæði himin og jörð.
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Hann stjórnar öllu fyrir sitt orð.
Gloria tibi, Domine.
5. Vér öðlumst gjafir anda hans.
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Oss verndar hann til sjós og lands.
Gloria tibi, Domine.
6. Hann gefur oss vort daglegt brauð.
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Og huggar oss í allri nauð.
Gloria tibi, Domine.
7. Hann kann að gjöra hvað hann vill.
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Og hvers dags nauðsyn oss færir til.
Gloria tibi, Domine.
8. Hann hefur ljent oss líf og önd.
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Hann leysti öll vor syndabönd.
Gloria tibi, Domine.
9. Þann, sem er hryggur, huggar guð.
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Hann hjálpar vel af allri nauð.
Gloria tibi, Domine.
10. Guð huggi þá, sem hryggðin slær.
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Hvort þeir eru fjær eða nær.
Gloria tibi, Domine.
11. Þó líði hér í heimi margt.
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Himneska gleði fáum snart.
Gloria tibi, Domine.
12. Sannlega á oss sjálfur guð.
En sorgin fari,
vor sorgin fari.
Sitjum og blífum í hans frið.
Gloria tibi, Domine.