Fyrirsögn:
Faðir á himna hæð
Lagboði:
Íslenskt tvísöngslag
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Brúðkaupskvæði; tvísöngvar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Faðir á himna hæð
hver fyrir Jesú náð
elsku þína oss vottar,
önd og líkama mettar.
2. Svo um lopt, vötn og jörð,
lýsir og hefur ferð
forsorgar og framfærir
fjölgar klæðir og nærir.
3. Blessar öll börnin þín
burt tefur synd og pín
færir þeim fæðu hreina
fyrir þinn son alleina.